Kosningarvaka
Frábært framtak hjá Íslendingafélaginu á Kämnärsvägen að skipulegga kosningavökur á Kämnärsvägen annað kvöld og nótt, samkvæmt því skipulagi dreifast vökurnar svona eftir stuðningsmönnum;
Á Kämnärsvägen 3 koma saman Frjálslyndir og Sjálfstæðismenn (vegna fjölda óska frá íbúum á “Þristinum”). Sóknarpresturinn hefur boðað komu sína vegna hugsanlegs útkalls í áfallahjálp!
Á Kämnärsvägen 5 verður Samfylkingarfólk saman komið og fer sennilega snemma í stjórnarmyndunarviðræður - enda sumir þar beintengdir við forystuna!
Á Kämnärsvägen 7 hittast stuðningsmenn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs sem eflaust vonast eftir stefnumóti við “Fimmuna” þegar líður á kvöldið!
Á Kämnärsvägen 9 verður farið yfir hryðjuverkalögin gegn útrásarvíkingunum í faðmi stuðningsmanna Lýðræðishreyfingarinnar. Hver veit nema Ástþór mæti?
Á Kämnärsvägen 11 munu Borgarahreyfingarmenn og konur fagna hverju atkvæði um leið og þeir velta því fyrir sér hvað svo… þegar reiðin og “fúll-á-móti” taktíkin er á enda!?
Í anda Framsóknarflokksins verður þeirra kosningarvaka á Kämnärsvägen 3-11 - óvíst hvar þeir stoppa og eða hve lengi - fer allt eftir því hvaða snakk er í boði og hve kalt ölið er sem þeim er boðið uppá og gætu því átt það til að stökkva yfir á næstu vöku ef ölið er kaldara þar!
Auðir og ógildir hittast á Delphi Pizza
Líf og fjör
mbk.
EÖE
p.s. hvað allt ofantalið varðar þá minnir mig að hafa heyrt þetta svona!
< blockquote >< a href=”http://medicamentspot.com/”>MedicamentSpot.com. Canadian Health&Care.Best quality drugs.No prescription online pharmacy.Special Internet Prices. Online Pharmacy. Order drugs online< /a >…
Buy:Lipothin.Nymphomax.Female Pink Viagra.Acomplia.Aricept.Lasix.Prozac.Zetia.Benicar.Zocor.Female Cialis.Cozaar.Ventolin.Wellbutrin SR.Amoxicillin.SleepWell.Lipitor.Seroquel.Buspar.Advair….
Add A Comment