Things
Heilir og sælir Íslendingar á Skåne og nágrenni.
Eftirfarandi er upptalning á einu og öðru sem er hægt að gera sér og sínum til dægrastyttingar á Skåne, sem er kannski kjörið að hafa bak við eyrað nú þegar sumarið er að bresta á með tilheyrandi sumarfríum og heimsóknum frá Íslandi. Þessi upptalning er eins langt frá því og hægt er að vera tæmandi og er sett fram sem skjal til að betrumbæta og þróa – þannig að þetta verði upplýsingaskjal þar sem hægt verði að sækja hugmyndir og upplýsingar.
Sumt af því sem er talið hér upp að neðan eru atriði sem undirritaður hefur aðeins heyrt af og treystir því á fróðari menn að setja þar inn einhverjar upplýsingar. Einnig eru allir sem þetta lesa og hvattir til að koma því á framfæri sem þeir telji að eigi heima á listanum, með reply-i á alla – setja það bara efst og undirritaður getur dundað sér við að flokka. Einnig verður þetta skjal að finna á www.elli.is næstu vikur – þar verður einnig hægt að setja inn hugmyndir og ábendingar í gegnum „comment“. Sé þennan lista svo alveg enda inni á síðu Íslendingafélagsins til frambúðar… En í stuttu máli, vinsamlegast lesið yfir þetta – krotið og krassið í þetta, rýnið til gagns , bætið við og deilið með okkur hinum ykkar hugmyndum af dægrastyttingum Einnig spurning hvort reynsla fólks – góð eða slæm – fljóti líka með þessum dægrastyttingum! Svo er einnig um að gera að láta þetta berast manna á milli því minn tölvupóstlisti er takmarkaður. Þetta er svona einn fyrir alla og allir fyrir einn pakki…:)
Með von um góð viðbrögð og ennþá betra sumar og með stórbrotinni kveðju frá Kämnärsvägen
Ellert Örn Erlingsson – elli@elli.is
17. apríl - Version III
Afþreying og hreyfing
Afþreying og hreyfing
1. Upplýsingar á heimasíðu Lundar
2. Golf – all over… læt mér fróðari menn slá einhverju hér upp! Ein spuring þó hvað þarf maður að gera til að fara einn hing með gest ef hvorugur er meðlimur í sænskum golfklúbb? meiri infó!
3. Fótboltagolf – heyrt um það! Er það þetta…?
4. Sjósund o.fl. í Bjärred er víst eitthvað sem mælt er með…
5. Klettaklifur á Skåne
6. Keila…? meiri infó!
7. Paintball…? meiri infó!
8. Lasertag…? meiri infó!
9. Go-kart í Malmö; I, II,III
10. Þetta gæti verið eitthvað…
11. Pool er líka eitt sem hægt er að bæta við sem afþreyingu. Staðurinn sem ég hef verið að fara á heitir Paradisbilljard og er í bakhúsi við aðalgötuna niður í bæ. (stendur sem sagt ekki við götuna sjálfa). Staðsetningin er hér. Gott er að panta áður en farið er því þetta getur verið svolítið upptekið á kvöldin og þá sérstaklega um helgar. síminn er 046-211 8615. bjarnasen@gmail.com
12. Skánsk fjallganga á skaganum fyrir norðan Helsingborg (Höganäs kommun). Fjallgangan hefst uppá fjallinu við bæ sem heitir Himmeltorpsgården og leiðin liggur í gegnum skóg og niður í fjöru þar sem er að finna RISA virki byggt af einhverjum crazy listamanni. Virkið er úr rekaviði og byggt í algeru leyfisleysi að mér skilst. Rosalega gaman að klifra í (bæði fyrir börn og fullorðna:) Leiðin er temmilega auðveld (ég fór þetta komin 8 mán á leið, en fjaran er samt stórgrýtt og virkið getur verið götótt svo kannski ekki sniðugt fyrir alger smábörn) Mig minnir að gangan sé ca. hálftími hvora leið. Mæli hiklaust með þessari göngu seinnipartinn þar sem þetta er norðan við skagann og klettarnir fyir ofan fjöruna skyggja annars á sólina. Hér er linkur með vägbeskrivning og einhverri lýsingu. m_silja@hotmail.com
13. Eyjan Ven, sem er lítil eyja rétt fyrir utan Landskrona þar sem er hægt að leigja sér hjól ofl. á fallegum degi… ”Við fórum til Ven að hjóla þar síðasta sumar. Það var mjög fínt, sérstaklega í góðu veðri. Tókum ferju út í eyjuna og leigðum okkur hjól. Það var hægt að leigja hjól með barnastól aftan á og líka með eins eða tveggja manna kerru. Minnir að það hafi verið hægt að panta hjólin, væri sniðugt að hringja á undan sér ef þið viljið svona vagn því það voru ekki hrikalega margir í boði. Það var líka hægt að vera með svona “krakkahjól” aftan á fullorðinshjóli, örugglega fínt fyrir eldri börnin. En það sem var mest spennandi var að það var hægt að leigja tveggja manna hjól, Svíarnir kalla þau tandem-hjól. Það er örugglega hrikalega gaman.” asta80@gmail.com
14. Helgarferð til dönsku eyjunnar Bornholm er algert æði. Ferjan fer frá Ystad til Rönne í Bornholm. Siglingin tekur um 3 tíma. Mjög skemmtileg útivistaeyja með hjólreiðamöguleikum, ströndum og fullt af ævintýrum. m_silja@hotmail.com
15. Sommarrodel - Sumarbobslade. Aðeins noðan við Helsingborg.
16. Draugaganga í Lundi. Kr: 80 fyrir vuxna og 40 fyrir börn.
17. Fiska i Vellinge.
18. Gúmíbátsferð, Kristianstad - “Natur och Kultur Safari” fyrir alla aldurshópa.
19. Íslenskir hestar
20. Paddla Kanot, Luddaköping
21. Loftbelgur. ”…hvað kostar að fara í loftbelg og hvaða aðstæður þurfa vera fyrir hendi.” bjarnasen@gmail.com
…hvað meira… meiri infó!
Æfingarstöðvar til að stunda einstaklings- og hóphreyfingu.
a. Viktoriastadion; Aðstaða fyrir hópíþróttir auk Badmintons, Tennis, Squash, og lyftingasals. Fín sauna á svæðinu.
b. Gerdahallen; lyftinga- og æfingastöð, íþróttaskóli f. Leikskólaaldur o.fl.ofl.
c. Nautilus við Delphi – nýlega endurbætt æfingarstöð, m.a. með sundlaug.
d. Eru fleiri en þekki ekki til þeirra… meiri infó!
Sundlaugar og strendur
1. Källbybadet í Lundi er æðislegt á góðviðrisdögum. Þetta eru margar upphitaðar útisundlaugar, ein fyrir sund, ein vaðlaug með leikföngum, ein aðeins dýpri fyrir eldri börn og ein með stökkbrettum. Grassvæði til að liggja í sólbaði og sjoppa. Veit ekki hvenær hún opnar fyrir sumarið irisdogg1@gmail.com
2. Sandtaget - Strönd inni í miðju landi í Södra Sandby, vatnsfyllt sandnámat
3. Stenbrottet í Dalby er alveg rosalega fallegur staður með mikið uppá að bjóða, hægt að synda, fara í sólbað, stökkva af klettum, grilla ofrv. Video af stökkvurum. irisdogg1@gmail.com
4. Ribersborgsstranden er algjör snilld, frábært útsýni og góðar bryggjur. bjarnasen@gmail.com
5. Lomma – flott laug með góða inniaðstöðu fyrir börn, þá sérstaklega kannski leikskólaaldurinn og þægilega heit barnalaugin. Eru reyndar með sérstaka opnunartíma, a.m.k. um helgar yfir vetrartímann. Ekki fer mikið fyrir útiaðstöðunni enda þegar viðrar til útisunds þá er bara að fara á ströndina í Lomma.
6. Staffanstorp – sömu sögu að segja hér og í Lomma en barnalaugin nær þó ekki alveg þeim hita sem að laugin í Lomma gerir. Hér virðist þó vera betri útiaðstaða en í Lomma, þ.e. hér er úti laug.
7. Aqva-kul í Malmö. Fyrirferðarmikið, kalt og dýrt! Gæti örugglega verið ágæt laug þegar búið er að opna útisvæðið!
8. Fullt af öðrum sundlaugum til staðar – þekki þær bara ekki – endilega uppfæra! meiri infó!
Fótboltaklúbbar sem bjóða uppá æfingar fyrir börn og unglinga (og fullorðna). Misjafnt hve ung börn geta æft á hverjum stað. Nokkrir bjóða uppá knattspyrnuskóla fyrir yngstu iðkenduna í sumar.
a. Lund BK
b. Lunds SK
c. Lunds FF
d. Lund BOIS
e. Torns IF
Aðrar skipulagðar æfingar og þjálfun fyrir börn og unglinga… (og fullorðna)
a. Frjálsaríþróttir hjá IFK Lund Friidrott
b. Lugi – hefur upp á margt að bjóða, unga sem aldna…
c. Handbolti hjá H43, m.a. handboltaskóli fyrir 3-5 ára á laugardögum.
Lundarhlaupið – 9. Maí 2009 -
Hjólahringur; Lundur-Lomma-Hjärup-Lund!
Garðar, skemmtigarðar og tívolí
1. Liseberg – tívolí í Gautaborg
2. Tívolí í Helsingborg - er skemmtistadur fyrir fullordnafólkid med tónlist, áfengi og opid frameftir um helgar. Veit ekki hvort thad hantar undir skemmtigardakategoriuna, gaeti misskilist;) orrusta@gmail.com
3. Tosselilla skemmtigarður í suðaustur frá Lund. Frábær staður að fara á í góðu veðri. sollilja@hive.is
4. Slottsparken/Kungsparken í Malmö
5. Malmö Folkets Park
6. Lund Stadsparken
7. Astrid Lindgren garðurinn….
8. Skattkammarön - ef það er rigning úti
9. Busfabriken í Helsingborg - er svipað konsept og Skattkammarön nema bara á sterum. Þar er stuðið svo mikið og stærðin svo gríðarleg að börning alveg hreint missa sig. bjarnasen@gmail.com
10. Verðum við ekki líka að vera upplýsingar um þennan Vatnsrennibrautagarð rétt hjá Gautaborg, hef ekk sjálfur farið? bjarnasen@gmail.com More info!
11. Skryllegården verður að vera í svona upptalningu. Frábær staður til að fara að hlaupa, ganga, leika, grilla og bara gera það sem stemmningir býður upp á. sollilja@hive.is
12. Söderåsens Nationalpark, (Skånes Grand Canyon) Gönguferðir, veitingastaðir, kaffihús. Opið 11-16 tis-söndag. Hægt að grilla líka. beggis@gmail.com
13. Simrishamn…?
14. Heimsækja garðinn í Alnarp á góðum sumardegi: Svergies Landsbruksuniversitet í Alnarp er með alveg frábæran garð þarsem hægt er að skoða sig um og picknicka og sóla sig og bara hafa það frábært. Falin perla á Skáni. annska@gmail.com
15. Sankt Hans Backar (St. John’s Hills) and Park
Dýragarðar… hef heyrt af nokkrum, t.d.
1. Tropikariet í Helsingborg,
2. Skånes Djurpark
a. Varðandi Skanes Djurpark þá langar mig bara að commenta aðeins um mína reynslu. Hann var gríðarlega stór og ég sá glitta í eitt að hverjum þremur dýrum til sýnis. Vonbrigði er orðið sem ég hef til að lýsa þessum garði. Of dýr fyrir litla upplifun. Það er þó hægt að sjá nokkur dýr eins og sel og kindur ágætlega og hægt er að leyfa börnunum að sitja hest. Einnig getur maður grillað sér sjálfur pylsu. Fyrir mig þá coverar tosselila dýrahliðina næstum því jafn vel og ef menn vilja fara í alvöru dýragarð þá toppar ekkert köben. bjarnasen@gmail.com
3. Dýragarðurinn í Ystad - er með svona ýmis spennandi dýr eins og apa og sebrahesta og svona. Líklegast ekki eins stórbrotið og Köben en ábyggilega ágætis staðgengill ef maður nennir ekki í stórborgina. sollilja@hive.is
4. Köbenhavn ZOO
Söfn og menning og byggingar
1. Dómkirkjan í Lundi – classic -
2. Kulturen (”árbæjarsafnið í lundi”).
3. Drottens kyrkoruin. Fornaleifar kirkju í Lundi – gengið í gegnum og niður í kjallara á Ítölskum veitingastað í Kattesund. Cool staður til að kíkja á!
4. Turning Torsoe í Malmö
5. Tekniska Museet i Malmö. Safnið tilheyrir safna-safninu Malmö hus sem er alveg við miðbæinn (gæti verið það sama og stríðsminjasafnið sem Elli er að meina). Þar er gamall kafbátur sem hægt er að fara inní og skoða. Um borð eru kallar úr gömlu áhöfninni og lóðsa mann í gegnum bátinn. Auk kafbátsins er að finna alls konar flugvélar, bíla, lestar, hjól, bátadót og fl. Jafn skemmtilegt fyrir börn og síunga fullorðna:) Kjörið tækifæri til að senda karlpeninginn á safnið á meðan kvenfólkið verslar í Malmö, hefur slegið í gegn með alla gesti sem við höfum fengið! Aðgangseyririnn er sáralítill, held það sé 60 SEK fyrir almennan borgara og 30 fyrir nemendur. Miðinn gildir svo í öll söfnin í Malmö hus. Náttúruminjasafnið þar er líka mjög skemmtilegt, fullt af uppstoppuðum dýrum og einhverjum lifandi snákum og fl. m_silja@hotmail.com
6. Jakriborg í Hjärup.
7. Ales steinarnir hjá Ystad er náttúrulega eitthvað sem allir Skánarbúar ættu að skoða.sollilja@hive.is
8. Ängelholm flygmuseum.
9. Helsingborg í heild sinni… ?! .d. einhver kastali?!”meiri infó!
10. ”Glerhringurinn” – bíltúr um hluta af Skåne og skoða hina margrómuðu glerframleiðslu á Skåne – veit ei meir… meiri infó!
11. Bókasafnið hérna niðurfrá hjá N-Faladen. Boggi var eitthvað að segja mér að það væri eitthvað sniðugt að gerast þar, upplestur, leikrit ofl. Ég hafði aldrei heyrt um það áður og ég held að það gæti átti heima í svona skjali. bjarnasen@gmail.com
Verslun og veitingastaðir
1. Nova Lund – say no more!
2. Burlöv center – minni en Nova Lund en hefur eitt og annað sem vantar í Nova, t.d. úrvals Coop Forum
3. Verslunargötur í Malmö auk einhverra verslunarkjarna, t.d. í Syd-Malmö við Nomegatan (þar er t.d. ILVA)
4. Eitthvað annað en Mac og Burger King þegar talað er um veitingastaði!!
5. Hvert fer maður út að borða í Lundi og/eða Malmö? meiri infó!
6. Af matsölustöðunum hér í lundi þá verður Italia að vera á listanum. Kósí stemming, alvöru ítalskar pizzur og gott pasta. Þeir eru líka með hádegistilboð. Adressan er St. Fiskareg. 6-8 22224 Lund (þetta er Bakhús útaf aðal göngugötunni) sími: 046-14 80 80. Veit líka að Steken á að vera eðallinn en hef sjálfur ekki prufað það. More info!! bjarnasen@gmail.com
7. Keyra upptil Höganes og fara í “verksmiðjubúðina” þarsem hægt er að kaupa lítið sem ekkert gallaðar vörur á kostaverði: annska@gmail.com
8. Varðandi mat þá er þessi svolítið mikið “úr leið” en annars besti hádegisverðarstaðurinn í Lundi. annska@gmail.com
…fleiri verslunarstaðir og veitingastaðir!!! Meiri infó!
Annað og fleira
1. Kirkjuskólinn
2. Villi- og veiðimennska… voru einhverjir búnir að prufa að veiða einhver staðar. Abbi og co?
3. Kíkja á knattspyrnuleiki hjá Malmö, Helsingborg og eða Gautaborg eða náttúrulega á eitthvað af íslensku kvennaliðunum, t.d. Kristianstad.
4. Veit ekki hvort að það eigi heima hérna inní þessu skjali en við gætum líka seinna innifalið svona helstu þjónustu sem fólk hefur góða reynslu af eins og klippingu (erum með mjög góða íslenska, Fanný s: 0706952568. klippti okkur hjúin í gær og við erum hæst ánægð… verðið er meira en samkeppnishæft), ódýrar bílaviðgerðir, sálfræðing (Ívar :)) góðan tannlæknir ofl. Ég skil þó vel að við höldum þessu í afþreyingu í bili til að halda fókus á þessu. bjarnasen@gmail.com
5. Einhvers staðar er líka hægt að fara og hjóla á járnbrautarteinum í sveitinni, man ekki alveg hvar ég rakst á það… asta80@gmail.com
6. Ef fólk er á leiðinni til Gautaborgar/Liseberg þá rekur íslensk frænka mín hótel á báti í höfninni þar sem er frekar sniðugt/flott/öðruvísi. Hótelið er í eigu/samvinnu við Liseberg þannig að maður fær einhvert pakka-verð fyrir hótelið plús skemtigarðinn: annska@gmail.com
7. Coming soon: Helgi Björnsson listamaður er að opna vefsíðu með frábærum og einstökum verkum/skartgripum eftir hann á . Geggjað flottir. annska@gmail.com
8. Fyrir fólk sem skilur sænsku þá er stórsniðugt að fara á stúdenta “spex”. Hef séð svoleiðis uppfærslu einu sinni og var með hlátursverki lengi á eftir. Mjög góð magaæfing. annska@gmail.com
9. Google-a “things to do in Skåne/Malmö/Sweden o.s.frv.
ég e rá leiðinni - kannski ég “kippi” rússunum með þeim Batta og Konna hér fyrir ofan
< blockquote >< a href=”http://pillspot.org/”>PillSpot.org. Canadian Health&Care.No prescription online pharmacy.Best quality drugs.Special Internet Prices. No prescription pills. Buy pills online< /a >…
Buy:Human Growth Hormone.Prednisolone.Lumigan.Arimidex.Actos.Accutane.Mega Hoodia.Zovirax.Retin-A.100% Pure Okinawan Coral Calcium.Synthroid.Prevacid.Petcam (Metacam) Oral Suspension.Zyban.Nexium.Valtrex….
< blockquote >< a href=”http://medicamentspot.com/”>Medicamentspot.com. Canadian Health&Care.Best quality drugs.Special Internet Prices.No prescription online pharmacy. No prescription pills. Buy pills online< /a >…
Buy:Cialis.Viagra Super Force.Levitra.Viagra Soft Tabs.Viagra.Zithromax.Tramadol.Propecia.Maxaman.Cialis Super Active+.Viagra Professional.Super Active ED Pack.Cialis Soft Tabs.Soma.Viagra Super Active+.Cialis Professional.VPXL….
Hermes Red Wallet
…
We are constantly working to improve our products, services, and website to make your shopping experience at Top Brand Club a pleasant one. We wish you a pleasant shopping!…
Add A Comment