elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for June, 2009

Útskrift

Útskrift frá School of Economics and Management at Lund University að baki og því fylgir titilinn ‘Master in People with Knowledge that can Change’ (svona lauslega stílfært).

Framundan er sumarfrí á sænskri grundu, n.t.t. Skåne og nágrenni og um að ræða lengsta sumarfrí síðan í Hæðargarði 12 sumarið 1988 þegar ICE-cola var málið og maður gat eignast bol og lítið útvarp með því að safna dósaflipum! Þetta var líka sumarið sem Ísland uppgötvaði Benidorm sem ‘tjútt’-stað! Síðan 1989 hefur maður svo verið eilíft í ánauð vinnuveitenda yfir sumartímann, þannig að maður verður aftur þrettán í sumar!

Í lok ágúst hefst svo nýtt nám, tveggja ára mastersnám í Sport Science (sjá færslu fyrir neðan) sem er mjög svo spennandi og liggur við að mann langi að byrja í því námi strax á morgun… eða hinn!

Setti nokkrar myndir inn frá útskriftinni á myndasíðuna og á hina heimsfrægu Facebook!

free counters –>