elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for February, 2009

21.

Krass búmm bang
Fyrir 12 mánuðum síðan, klukkan 17:55 á fimmtudegi endaði annars góð ökuferð (so far) utan vegar í Álftafirði. Gekk heill frá rússibanaferðinni og í raun ekkert meira um máið að segja heldur en að þessi dagur verður alltaf minnistæður fyrir þessa byltu og jú kannski vegna þess að “kattarlífunum” fækkaði eitthvað!
Fleiri myndir frá 21.feb.2008. og færslan frá febrúar 2008. –>

Úrslit

Svona verður þetta í maí!
20. febrúar 2009
Mikið er rætt og ritað um hugsanleg afrek Man.Utd. á næstu 100 dögum og hvað þeir hafa í höndum sér og bla bla bla… en sannleikurinn er sá að þeir lenda á vegg í viðureignum sínum gegn sænska töframanninum og portúgalska hrokagikknum og félögum hjá Inter Milan í meistaradeildinni og svo tekur steininn úr þegar Danny Murphy tryggir Fulham óvæntan sigur á Man.Utd. í bikarnum… fara þá öll vötn þá að falla frá Manchesterborg og streyma til Bíltaborgarinnar. Lokastaða deildarinnar í lok maí verður því á þessa leið skv. öruggum heimildum www.elli.is;

1. Liverpool, 27 sigrar, 10 jafntefli, 1 tap – Mörk: 78-22 – 91 stig
2. Man.Utd., 26 sigrar, 7 jafntefli, 5 töp - Mörk: 71-24 – 73 stig

Máli mínu til stuðnings er að finna hér að neðan úrslit leikjanna hjá Liverpool og Man.Utd. eins þau verða og til fróðleiks leið Liverpool að sínum sjötta Evrópumeistaratitli.

21.2. Man.Utd. - Blackburn 2-0 2-1
22.2. Liverpool - Man. City 3-1 1-1

24.2. Inter Milan - Man.Utd 2-2 0-0 (Meistaradeild, 16-liða)
25.2. Real Madrid - Liverpool 1-1 0-1 (Meistaradeild, 16-liða)

28.2. Middlesbro - Liverpool 0-2 2-0 …helvítis fokking fokk!

1.3. Man.Utd. - Tottenham 1-1, 5-3 í vító! 0-0, 4-1 e. vító (Deildabikar, úrslit)

3.3. Liverpool - Sunderland 4-0 0-2
4.3. Newcastle - Man.Utd. 1-3 1-2

7.3. Man.Utd. - Fulham 1-2 4-0 (Enski bikarinn)

10.3. Liverpool - Real Madrid 2-0 4-0 (Meistaradeild, 16-liða) !!!!!
11.3. Man.Utd. - Inter Milan 1-2 2-0 (Meistaradeild, 16-liða)

14.3. Man.Utd. - Liverpool 0-2 1-4 Já sæll! A game to remember!

21.3. Fulham - Man.Utd. 0-2
21.3. Liverpool - Aston Villa 2-2

4.4. Man.Utd. - Aston Villa 1-3
4.4. Fulham - Liverpool 1-2

7/8.4. Bayern Munich – Liverpool 0-0 (Meistaradeild, 8-liða)

11.4. Sunderland - Man.Utd. 0-3
11.4. Liverpool - Blackburn 3-0

14/15.4. Liverpool – Bayer Munich 2-1 (Meistaradeild, 8-liða)

18.4. Liverpool - Arsenal 2-0

22.4. Wigan - Man.Utd. 1-2

25.4. Hull - Liverpool 0-5
25.4. Man.Utd. - Tottenham 2-2

28/29.4. Liverpool – Juventus 0-0 (Meistaradeild, undanúrsl.)

2.5. Middlesbrough – Man.Utd. 0-2
2.5. Liverpool - Newcastle 3-0

5/6.5. Juventus – Liverpool 0-0, 0-1 í framl. (Meistaradeild, undanúrsl.)

9.5. Man.Utd - Manchester City 2-2
9.5. West Ham - Liverpool 1-3

13.5. Man.Utd. - Portsmouth 3-0

16.5. Man.Utd. - Arsenal 1-2
16.5. WBA - Liverpool 0-3

24.5. Hull - Man.Utd. 1-4
24.5. Liverpool - Tottenham 2-0

27.5. Liverpool – Barcelona 1-1, 2-2 e. framl., 8-7 e. vító. (Meistaradeild, úrslitaleikur)

…er nokkuð annað um málið að segja?
–>

…í

Pétur Jóhann?
Eftir að hafa séð meðfylgjandi mynd af Pétri Jóhanni vissi maður að það er allt hægt þegar kemur að því að koma sér í form - þeim mun ákveðnari varð maður þá að ná skrokknum í sama form og Pétur Jóhann karlinn - sá hefur lagt á sig þokkalega vinnu! Andlegar æfingar hófust um jólin en æfingar hófust að fullu á nýju ári og liður í æfingarprógrammi eöe er m.a. hinn margrómaði Stångby-bolti þar sem leikið er upp á líf eða dauða og svo hið vinsæla Hnit - þar sem leikið er upp á heiðurinn framar öllu öðru. En ekki má gleyma hinu geysivinsæla götuhlaupaliði; Léttir í Lundi - sem er með 2-3 hlaupaæfingar í viku og hefur eitt markmið, og aðeins eitt markmið - sem er að hlaupa alla kílómetra á innan við 4 mínútum, hvort heldur sem um er að ræða eins km. hlaup, 5 km. eða 10 km. - lengri vegalengdir eru aðeins á “hold” sem og upplýsingaveitan um hvernig æfingar ganga útfrá mælingum versus markmiðinu! En við spyrjum að leikslokum…

Svo er komin upp ný staða í kjölfar góðs gengis hjá Thorvaldi hjá Aarhus Fremad í DK - sem er hvort samningar náist um undirritaður fái að mæta bara í leiki hjá liðinu - öll sú pappírsvinna er í Thorvaldar og er svara að vænta fljótlega!

EÖE

p.s. svo segir fiskisagan að Automan verði í Idol-inu um helgina?

p.s.#2 svo á ex-Sambó heiður skilið fyrir masterinn!
–>

Samsæri…

Þetta er allt eitt samsæri!
Eitthvað hafa lesendur síðunnar verið í vandræðum með að commentera á síðunni og hafa í stórum hópum sent tölvupóst á elli@elli.is eða hringt í leyninúmerið mitt sem er gefið upp í contact hér að ofan. En málið tengist síðustu færslu og þessari staðreynd með Svíjanna - margir eiga bátt með að trúa þessari reglufestu og pappírslýðveldi sem fylgir Svíjunum - til að koma til móts við enn fleiri lesendur síðunnar ætla ég að gefa fleiri dæmi um þessar reglur Svíjanna (svipuð og stundum sömu dæmi og ég hef verið að gefa fólki direct). En mjög gott dæmi varðandi reglufestu og regluvitleysu Svíja er ferlið varðandi skráningu í Försäkringskassan (Tryggingarstofnun) sem tekur nokkra mánuði - við erum ennþá að bíða eftir því að komast inn í “kerfið” (skráðum okkur í ágúst) - og á meðan þú ert ekki kominn inn í kerfið þarft þú að fylgja ákveðnum reglum - færð afhent lög og reglur varðandi þessa skilmála þegar þú skila inn umóskn í “kerfið” (sem eru að sjálfsögðu á Sænsku). En helstu ákvæðin sem við höfum verið að vesenast í eru eftirfarandi; Þeir sem eru ekki skráðir inn í Sænska tryggingarkerfið (Försäkringskassan) og eiga umsókn í ferlinu (eru s.s. ekki ferðamenn) mega ekki I) nýta sér þjónustu leigubíla (Taxa), II) hjóla á reiðhjólastígum - þar skulu hjólin teymd - en mega hjóla á umferðargötum, III) óheimilt að versla í matvöruverslunum fyrir meira en 500.- SEK (x 13,74 = ísl. upphæð) í hverri verslunarferð, IV) skulu ávallt vera aftasti í röð (ef einhver röð er) og gefa sitt stæði eftir fyrir löggiltan Svíja, og V) einungis sitja í farþegasætum aftur í ökutækjum.
Eins og ég sagði í síðustu færslu mætti telja endalaust upp þessar reglur og lög Svíjanna! En kannski er þetta bara liður í að skapa atvinnu? - Þetta er þá einmitt leiðinn…!? - A.m.k. er nóg af Orange-liði (eins og þeir eru kallaðir) í vinnu við að framfylgja þessum ákvæðum - Orange-liðar eru all-over og hafa rétt á að beita háum sektarákvæðum ef lögum og reglum er ekki framfylgt!! Eitt sem ég má til með að nefna líka er heimabankaþjónustan í SEB, þar fær enginn heimabanka nema viðkomadi er (hvítur) Svíji af því að heimabankinn er á sænsku… og dööö enginn kann sænsku nema fæddir (hvítir) Svíjar - grunar reyndar að þarna liggi einhverjar leifar frá þriðja ríkinu í stjórn bankans!

En það er ekki furða að á köflum líði manni eins og Mel Gibbson í Conspiracy Theory (1997) - hvar endar þetta? Það er bara óskandi og vonadi að okkur takist að komasti inn í “kerfið” í febrúar!

…og já takk Líney - ég hef reyndar líka verið í vandræðum með að commentera á mína eigin síðu - eins fáránlega og það hljómar… kannski það er eitt af skilmálum Försäkringskassans? Þarf að athuga það… á sænsku!

Over and out!
EÖE –>