
Um það bil akkúrat núna eru 10 ár liðin frá því hópur síðustu Móhíkananna kom saman á Laugarvatni. Hópurinn hefur þroskast mikið en þó greinilega mis mikið því í pípunum hjá Gáskahópnum (klofningssamtök frá Móhíkönunum, sennilega eitthvað skyldari Grænlendingum) er einhver sumarbústaðarhittngur með tilheyrandi djammi - af hverju ekki að gera eitthvað fallegt saman?
Er ekki nóg komið af fyllerísrugli og sukki? Ekki meira, það er komið nóg - nú er kominn tími til að gefa meistara Jesú tíma og opna faðma sína sem og hug fyrir Jesú og fylgdarliði - legg til að hópurinn komi saman á auglýstum stað og stund en nýti sumarbústaðinn til upprifjunar á visku Nýja Testamenntsins - sem væri vel til fallið nú til að virða og minnast hr. Sigurbjörns Einarssonar biskups sem er nýlátinn. Böl bakkusar bræðir vit og færni úr líkama okkar og hneppir sálu bakkusarvina í fangelsi sálarkvala og hugarstols.
Eru því allri þeir sem fá boð frá hópi bakkusar, öðru nafni Gáska-hópurinn, hvattir til að láta boð um skilyrta fylgd bakkusar í bústaðinn sem vind um eyru þjóta og mæta með orð Guðs í vinstri hendi og friðarkerti í hægri hendi til að hreinsa og blessa þær sálir sem ekki höfðu styrk til að standast árás Gáskahópsins í fylgd Bakkusar.
Feðgarnir, Guð og Jesú, munu vakta samkomuna og dæma menn upp og niður af gjörðum sínum á þessu leiksviði sem Gáskahópurinn býður uppá.
Kynnið ykkur nánar boðskapinn á www.gud.is
Rifil nniðirrrru! –>

Vika í Sweden að baki og túristabragurinn að fara að fjölskyldunni og raunveruleikinn að taka við - við erum flutt!
Gámurinn með brettunum okkar þremur á að lenda í Svíþjóð í dag.
Erum að leita að húsnæði til að taka við af kastalanum okkar í Hjärup í nóvember og í þessu íbúðarkerfi sem við leitum hvað mest í þýtur maður upp listann með börn - svo datt inn íbúð (4 rooms) sem var sniðin fyrir okkur en þá höfum við ekki meiri forgang en svo - með 3 börn - að þriggja manna fjölskylda fékk þá úthlutun í okkar stað og við númer tvö í röðinni þar - hefðum fengið íbúðina ef hin fjölskyldan hefði sætt sig við íbúð með 3 rooms - sem ætti að vera nóg - en þar var íslensk (mínus vestfirðir) græðgi á ferð og þessi íbúð því ekki okkar.
En eins og spákonan sagði við HME þá fer þetta allt vel. Með þann spádóm í fararteskinu og heimspeki Jónasar Gunnþórs Jónssonar - “Þetta reddast” - að leiðarljósi þá höfum við ekki áhyggjur!
Einu sinni í viku er bolti hjá Íslendingum í Lundi. Fyrsti bolti vetrarins var á þriðjudagskvöldið og á nú eitthvað eftir að slípast til hverjir eru til staðar og hverjir mæta - en snilld að komast í bolta - spurning með bikarævintýri í vor - en annað sem er víst að íslendingarnir keppa í háskóladeildinni í Lundi - inni og úti og hefst það tuðruspark í september! Lofar góðu og spurning hvort undirritaður og Ömmi Rúnars (who is moving to Lund) verði markvarðahrellar í fremstu víglínu í vetur???? Enginn veit sína ævi fyrr…..
“Skólasetning” var í gær - þá komu saman hóparnir/bekkirnir sem eru og verða saman í prógrammi. Í mínum bekk voru 30 mættir (þ.e. international nemar) og eru þessir þrjátíu aðilar frá 24 þjóðum - n.t.t. Ítali, Búlgari, Kanadamenn (2), Írani, Palestínumaður, Pólverji, Keníamaður, Dani, Kínverjar (3) Filipseyjingur, Hollendingur, Rússi, Normaður, Íslendingur, Lithái, Kani, Makadóni, Þjóðverjar (3), Georgíubúi, Svisslendingur, Skoti, Grikki, Króati, Tyrki og Vestfirðingur (ég). Kynjaskiptingin var einföld 20 kvk vs. 10 kk. Á mánudaginn mæta svo einhverjir Svíjar inn í prógrammið þannig að þetta verður mjög GLOBAL-tímar.
Hvað námið varðar þá look-ar þetta vel og verður örugglega þetta pís-of-keik…
…og vá varðandi allt handboltafárið og silfurdrengina þá er nú ekki annað hægt en að vera stoltur Íslendingur og telja sig sem hluta af þessu ævintýri - sem Íslendingur - ásamt hinum 300 þús. - eða svona eins og Óli orðaði það… „Það er ótrúleg gjöf að vera Íslendingur”
later
EÖE
p.s. erum komin með sænsk símanúmer - sjá hér! –>
Já vá hvað maður (sem og aðrir Íslendingar) hefur verið handball-thinking síðustu dagana og að sjálfsögðu að rifna úr stolti og það komu upp moment þar sem tár hefðu geta fallið á hvarma (ítreka; hefðu) í kringum leikinn gegn Spánverjum. En eftir 11 klst. hefst leikurinn um gullið og það er næsta víst að við vinnum þann leik 35 - 33 og rífum hið títt nefnda blað sögunnar í íslenskum íþróttaheimi - slíkur árangur kallar líka á spennu þegar tilkynnt verður um tíu efstu í kjöri til íþróttamanns Íslands 2008 - það hlýtur að vera allt byrjunarliðið í leiknum á eftir (7 stk.) + þeir sem skipta inná og útaf í vörn og sókn (2 stk., alls 9 stk) og svo verður blaðið fræga límt aftur saman þegar tíundi aðilinn verður tilkynntur; Gummi Gumm þjálfari. Svona mun þetta verða í lok desember n.k. og ekki nóg með það, heldur mætir allt liðið með Fálkaorðuna í brjóstiu sem þeir fengu frá Óla Ragga (ferðafélaga í Kína) viku áður á Bessastöðum - Reyndar verður Óli Stefáns með Stórriddara krossinn þar sem hann er búinn að fá Fálkaorðuna.

Af hverju verður þetta svona, Jú af því að á ÓL1992 í Barcelona var undirritaður í stúkunni á leiknum um bronz-ið og sá þar ákveðna dagdrauma um framtíðarafrek handboltalandsliðsins auk þess sem ákveðin veikleikamerki sáust á liði Frakkanna í þeim leik sem enn hafa ekki gróið heil.
Af hverju núna; Jú ef nöfn leikmanna í hópnum á ÓL1992 eru sett upp í eftir skóstærð og nöfnum leikmanna liðsins á leikunum núna (ÓL2008) raðað inn á milli eftir skóstærð þá kemur nokkuð athyglisvert út þegar búið er til orð úr fremsta starfinum í nöfnum leikmannanna… jessss Island er sigurvegarar
Einnig er að finna ákveðin teikn á lofti varðandi logo/merki leikanna 1992 og 2008 - t.d. eru bæði merkin með alveg eins hringi í sömu uppröðun neðst - meira að segja í sömu litum, bæði með einhverja fígúru sem er að hlaupa/hoppa og ef þið haldið að ég sé að grínast… tjékkið þá á þessu - leikarnir fara fram í borgum sem byrja á B sem minnir bara á íslenska orðið BESTIR og svo snúast tölur við í ártölunum, talan tveir (2) er orðin fremst og níu (9) er orðið að átta (8) - m.ö.o. urðum númer tvö í síðustu viðureign við Frakka á ÓL en nú er 2 orðin í fararbroddi og að 8 verði að 9 þýðir hækkun um einn, þ.e. hækkum um eitt sæti… Þetta gæti ekki legið augljósara í loftinu og þetta er örugglega þau tákn sem Óli Stefáns og félagar hafa séð snemma árs þegar undirbúningur fyrir umspil ÓL2008 hófst! Hlítur að vera!

Áfram Ísland
–>
Eftir rétt tæpa sjö klukkustundir fer fjölskyldan í loftið frá KEFVLAVIK Airport áleiðis til Köbenhavn og þaðan með lest til Hjärup í Swerge!
Við erum símatengd að einhverju leiti í gegnum íslenska GSM-farsímakerfið og komumst vonandi fyrr en síðar í netsamband.
Mæting í skólann á mánudaginn n.k. og kennsla hefst viku síðar - þangað til er að koma sér fyrir og vinna í pappírunum en fyrst um sinn er það í forgang nr. 1, 2 & 3 að finna stað og stund til að horfa á Ísland vs. Espana á föstudaginn í undanúrslitum ÓL2008.
Heyrumst síðar - vonandi fyrr en síðar
kv. EÖE –>

Já þá er maður senn floginn frá Þingeyri með alla fjölskylduna - undirritaður fer suður í vikunni með afganginn af búslóðinni sem fer með til Swerge, aðrir fjölskyldumeðlimir fljúga um næstu helgi. Svíþjóðarbúslóðin hefur farið í bútum til Reykjavíkur í ágúst og verður tekin saman um næstu helgi, pakkað saman, plastað inn og sett um borð í MS Helgarfell sem heldur úr 21. ágúst. Fjölskyldan flýgur til Köben 19.-21. ágúst og lendir í 190 m2 parhúsinu í Hjarup fljótlega eftir það.
En er óákveðið hvort eðalvagn fjölskyldunnar verði seldur eða fluttur erlendis - ef MMC Pajero-inn fer með verður maður örugglega hinn jeppaeigandinn á Skáni - en næsta víst er þó að nagladekkin verða eftir á fróni! Annars erum við að tala um 2000 árgerð, ekinn 187 þús., dísel, sjálfskiptur, dráttarbeysli og nýleg nagladekk fylgja. Mjög hagstætt (erlent) lán sem fylgir. Heildarverð 1.950.000.- krónur.
En talandi um krónur og flutninga þá hefur það verið staðfest að Vestfirðir (og örugglega önnur landsbyggðarsvæði sem eru á leynilegri útrýmingaráætlun yfirvalda) eru álitnir sem útlönd (eða eitthvað þar af verra) - a.m.k. þegar miðað er við gjaldskrá flutningsfyrirtækjanna; M.ö.o. það kostar jafnmikið að drösla 20ft gám til Reykjavíkur frá Þingeyri og það kostar að sigla og aka með alveg eins gám frá Reykjavík upp að dyrum í Hjarup í Swerge - hvor flutningur fyrir sig kostar rúmlegar 300.000.- krónur! Ótrúlegt! Eða hvað?
Yngsti erfinginn fagnar árs afmæli á morgun - magnað hvað tíminn líður hratt og gaurinn sá rifnar út og verður senn farinn að snúa sína eldri bræður niður!
En að lokum þá var hinsta sundferðin í Sundhöll Þingeyrar í kvöld (a.m.k. í bili) og verður smá söknuður af þeirri menningarmiðstöð!
kv. EÖE
p.s. minni áhugasama og áhugaminni að skrá sig í Vestfjarðardeildina…

Nú er ágústmánuður gengin í garð og þá líður senn að því að Enski boltinn fari að rúlla og þriðja árið í röð verður Vestfjarðardeildin í loftinu á fantasy.premierleague.com. Allir sem það vilja og geta sýnt fram á einhver tengsl við Vestfirði - sama hve langsótt þau eru - geta skráð sig í deildina. Þeir sem hafa verið áður í deildinni geta notast við sömu liðsnöfn og áður en aðrir þurfa stofna ný! Aðgangsorðið í deildina er (Code to join this league:) 493232-100795
Áhugasamir og áhugaminni hvattir til að fjölmenna í deildina og vera með frá upphafi - töpuð stig í upphafi geta skilið á milli lífs og dauða um miðjan maí 2009!
Í hnotskurn; fantasy.premierleague.com. Code to join Vestfjarðardeildin: 493232-100795
–>

Nú er ágústmánuður gengin í garð og þá líður senn að því að Enski boltinn fari að rúlla og þriðja árið í röð verður Vestfjarðardeildin í loftinu á fantasy.premierleague.com. Allir sem það vilja og geta sýnt fram á einhver tengsl við Vestfirði - sama hve langsótt þau eru - geta skráð sig í deildina. Þeir sem hafa verið áður í deildinni geta notast við sömu liðsnöfn og áður en aðrir þurfa stofna ný! Aðgangsorðið í deildina er (Code to join this league:) 493232-100795
Áhugasamir og áhugaminni hvattir til að fjölmenna í deildina og vera með frá upphafi - töpuð stig í upphafi geta skilið á milli lífs og dauða um miðjan maí 2009!
Í hnotskurn; fantasy.premierleague.com. Code to join Vestfjarðardeildin: 493232-100795
Keppendur eru hvattir til að smala vinum og vandamönnum í Vestfjarðardeildina.
Vinsamlegast skrá liðin undir réttum manager-nöfnum - ekki dulnöfnum!
Sjá Vestfjarðardeildina hér!
Líf og fjör
eöe –>
Dísús kræst hvað flutningarnir voru fyrirferðameiri og tóku miklu meiri tíma og fyrirhöfn en okkur óraði fyrir, sennilega af því að allt var flokkað í þrjá yfirflokka; a) Til Svíþjóðar, b) Í geymslu og c) Henda. b) og c) var svo flokkað í tvennt; b1) Í geymslu hjá Finna og b2) Í geymslu á Brekkugötu 46; c1) Á ruslahaugana og c2) í Rauða krossinn (sem ÞSS gengur erfiðlega að kalla annað en Rúmfatalagerinn).
En erum nú millilent á Brekkugötunni ásamt stórum hluta búslóðarinnar og erum að huga að framhaldinu.

Flutningarnir hefðu gegið öðruvísi fyrir sig ef ekki hefði notið við rjómuð veðurblíða og örugglega bestu tvær vikur í Dýrfisku veðurfari í mannaminnum - þvílík verðursæld og hiti!
EÖE –>