elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for July, 2008

Next

...og ég versla ekki í Vörutorginu! :)
Nú þegar vika og 7 klst. eru síðan fjölskyldan lenti á Þingeyri eftir viku suamrfrí á suðaustur undirlendinu hefur varla verið dauð stund á heimilinu - enda er sumarið tíminn eins og Bubbi sagði á sínum tíma.

Svar barst frá Lund University sl. föstudag á þá vegu að elli.is væri velkominn í skólann í haust - þriðjungur heilahvelsins hefur verið í Lundi (Swerge) síðan þessar fréttir bárust en það dróg ekki úr fjörinu á eyrinni - við hjónin drifum okkur í Vesturgötuna (12 km hlaup) á laugardaginn og héldum svo V.I.P. Garden-kveðju-grill fyrir velunnara Hlíðargötu 37. Geggjað veður og sænskir dagdraumar skiluðu góðum árangri í hlaupinu og voru svo ráðandi í Gardengrillinu fram á nótt. Þessi tími sumarsins er tími mikilla heimsókna í fjallið, n.t.t. Hlíðargötu 37 og um þessar mundir hýsum við flóttafjölskyldu frá borg óttans.

Frumburðirnir fögnuðu 4ra ára afmæli á þriðjudaginn (22/7) með tilheyrandi veisluhöldum, fjöri og fólksfjölda - og gerðu svo annað eins þann 23/7 þegar annar eins fjöldi mæti í annan í afmæli!

Milli þessa sjálfsskapaðra tímaþjófa er verið á hlaupum á milli vefsíðna að leita og skoða allt og ekkert um Swerge - og er aðal höfuðverkurinn að finna húsnæði - eitthvað sem margir byrja á a.m.k. 6 mánuðum fyrr en við…

Hvenær brottför er frá Þingeyri liggur ekki fyrir né hvenær fagra Ísland verður viðskila við okkur - en næsta víst er að elli.is þarf að vera mættur 26. ágúst í skólann - í þeim pælingum er Norræna þann 14. ágúst líklegur kostur en fjórir yngstu fjölskyldumerðlimirnir myndu fljúga! Annað sem er kristal að Hlíðargata 37 verðu kvödd fyrir 1. ágúst og millilent á Brekkugötu.

Ýmislegt hefur skotið upp kollinum í yfirferð hjónanna í gegnum innbúið í aðdraganda flutningsins - hraustleg og góð naflaskoðun að flytja… - í kjölfar flutninganna ætlum við að selja eitthvað af innbúinu og er sá listi ekki endanlegur!

Hvort næsta færsla hér verði á sænsku frá Svíþjóð verður að ráðast af framboði og eftirspurn tímamagnsins sem maður hefur milli handanna!

kv. E. Erlingsson –>

Til

á leið til vinnu síðasta daginn...
Sendi eftirfarandi tölvupóst á alla addressbook-ina í dag og hendi þessu líka hér inn just svona bara…

Undirritaður lætur senn af störfum eftir 5 ára starf sem skólastjóri á Þingeyri. Óráðið er hvað tekur við… en skýrist á næstu misserum. Nýr skólastjóri á Þingeyri hefur störf um næstu mánaðarmót og heitir Bogi Ragnarsson – bogi@isafjordur.is

Áður en stólinn er kvaddur og e-mailið (ellert@isafjordur.is) lagt niður langar undirritaðann að þakka öllum – nær og fjær – samstarfið og samskiptin undanfarin ár – heyrumst og sjáumst á nýjum vettvangi!

Lifið heil – líf & fjör

Ellert Örn Erlingsson
Verðandi fyrrverandi skólastjóri Grunnskólans á Þingeyri
Nýtt tölvupóstfang = elli.is@hive.is

–>