elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for June, 2008

Forca

Nú er tími Spánverja kominn...
Fjölskyldan komin westur á firði eftir helmingi lengri Sódóma dvöl en efni stóðu til - fengum þess í stað að hitta nýfædda tvíburadrengina hjá Smára og Hallberu - sem var náttúrulega bara frábært - til lukku H & S.

Datt í stólinn hjá Háls-, nefa- og eyralækni í sl. viku - við feðgarnir fengum svona hópafslátt á tilboði - og þar fékk maður sannkallaða skyndiskoðun og um leið falleinkunn - fjarlægja hálskirtlana og laga miðnesið (copyright Lisebet Hauks) sem lokar nánast annari nösinni! M.ö.o. tvær aðgerðir á dagskrá á næstu misserum og ætli ég sendi ekki reikninginn fyrir miðnesið niður í Jóa Útherja c/o V.V. með kveðju fyrir nefbrotið í boltanum á skólalóðinni haustið 1993 (eða ´92, ´94, ´95).

Fór ásamt 700 öðrum í Miðnæturhlaup sl. mánudag - skokkaði 5 km í Laugardalnum (tími 19:40) - og lúmskt (eins fáranlegt og það hljómar) hvað það er gaman að keppa við klukkuna… bætti svo um betur og fór 10 km í Óshlíðarhlíðarhlaupi (tími 43:06) í gær fyrstu 6,5 km var góður meðvindur en síðustu 3,5 km var þokkalega sterkur mótvindur og stundum var þetta eins í martröð - maður hljóp og hljóp og hreyfðist ekkert! En sem fyrr lúmskt gaman þegar í mark er komið… vonandi að þetta hlaupaæði haldi áfram!

Núna tæmum 3 klst og 30 min fyrir úrslitarleik Spánverja og Þjóðverja er það ritað hér að leikurinn endar 4-0 fyrir Spánverja og El Nino - betur þekktur sem Fernando Torres skorar öll fjögur mörkin og verður markahæsti maður mótsins - skal tekið fram að um mjög raunhæft og hlutlaust mat er að ræða þó svo Spánverjar hafi alltaf verið mitt landslið á eftir fagra Íslandi og að Torres leiki með Liverpool F.C. - sem er sagan segir að sé besta lið Bretlandseyja frá því mælingar hófust…
Áfram Spánn - Forca Espania!
–>

197

Blómabarn á Hrafnseyri 17. júní 2008.
Fjölskyldan skellti sér í 197 ára afmæli heima hjá Jóni Sig á Hrafnseyri þann 17. júní - varla hægt að vera mikið þjóðlegri á þjóðhátíðardaginn. Flott veður, fín dagskrá og úrvald veitingar!

Fjölskyldan é leið til RVK á föstudaginn - brúðkaup á laugardaginn og stoppar eitthvað fram í næstu viku.

Hlaupaæfingar stand yfir innan fjölskyldunnar vegna Óshlíðarhlaupsins sem fer fram 28. júní - stefnan tekin á 10 km.

Enn liggur ekki fyrir hvað stórfjölskyldan að westan gerir í haust, n.t.t. í ágúst - spennandi!?!?!

Dúndraði nokkrum myndum inná myndasíðuna.

kv. EÖE –>

Ég verð bara að tjá mig um handboltalandsliðið okkar Íslendinga!. Eða öllu heldur flaggskip íslenskra íþróttamanna. ÉG ER SVO STOLTUR AF HANBOLTALANDSLIÐINU, STRÁKUNUM OKKAR, AÐ MÉR ÞÆTTI RÉTT AÐ BREYTA NAFNINU Í HÖRMUNGARBOLTALANDSLIÐIÐ!!!!

Þetta er ekki vegna þess að þeir sigruðu Svíja núna um helgi. Hinsvegar tengist þetta þeim leik verulega, og vinnubrögðunum sem voru höfð í kringum mótið sem landsliðið var að keppa á! Þetta “van-stolt” mitt á mínu liði stafar af þeim vinnubrögðum sem voru höfð í kringum þetta mót og því hvernig fölsk von var vakin upp meðal þeirra leikmanna sem hafa æft með liðinu í vetur.

Þegar stóra stundin rann upp á föstudaginn voru aðeins liðnir u.þ.b. 72 klukkutímar síðan níu leikmenn fengu að vita að þeir væru ekki með í liðinu. Það sem er enn hallærislegra er að margir af þessum níu leikmönnum langaði að vera með og leituðu sér upplýsinga hvenær þeir ættu að mæta og hvernig ætti að nálgast búning þegar þeim er tilkynnt þetta!

Í staðinn fyrir amk þessa 9 leikmenn sem hafa æft í vetur, voru fengnir vinir og vandamenn héðan og þaðan frá útlöndum til þess að spila. Sagan segir meira að segja að HSÍ hafi borgað flugfar frá Spáni fyrir kviðmág aðstoðarþjálfarans til þess að hann gæti spilað með… sel það dýrara en ég keypti það, en velti þá fyrir mér hvernig var með alla hina sem komu að víða frá Evrópu?

Ég hef heyrt í fjölmörgum Íslendingum sem undrast á því hve fámennt var í áhorfendastúkunni gegn Svíum - aðeins 8 Íslendingar - þó svo þetta hafið verið útileikur. Ég hef líka heyrt í fjölmörgum Íslendingum sem sáu ekki sóma sinn í að mæta vegna þess hvernig komið var fram við heimamenn. Aðeins voru fjórir heimamenn í æfingarhópnum og svo var enginn heimamaður valinn í 14 manna hópinn fyrir mótið - bara útlendingar sem spila með liðum erlendis - einhverjir leikmenn sem enginn þekkir… –>