elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for March, 2008

Sönn

bilde.jpg

Næstu dagar á eftir 9. mars 1998 voru skrýtnir!

Mætti til vinnu eftir hádegi þann tíunda (daginn eftir) og sá dagur og þeir næstu þar á eftir fóru af megninu til í að segja frá atburðum 9. mars! (aðeins ýkt en hljómar betur:)) en einnig bættust við fleiri bitar í púslið sem vörpuðu ljósi á atburðarrásina. En það sem skyggði á var að vinurinn var enn í gæsluvarðhaldi lögreglunar og losnaði ekki fyrr en nokkrum vikum síðar!

Vandræðalegast fyrir mig var að útskýra fyrir þjálfaranum og félögum í liðinu af hverju ég mætti ekki í leikinn umrætt kvöld - hljómaði eflaust eins og mjög léleg lýgi í einhverjum eyrum…

Hvað var málið?
Málið snérist um mesta fíkniefnainnflutning ársins 1998 - c.a. 1 kg af amfetamíni. Athugið að árið 1999 var stæsta málið tengt 25 kg smygli á fíkniefnum og Pólstjörnumálið 2007 taldi rúmlega 40 kg af dópi. ´
En í BMW-inum hjá vininum hafði Fíknó fundið þetta kíló og gert upptækt og sett í staðinn gervipakka með viðeigandi sendi.

Saga gervipakkans
Vinurinn fór til Þýskalands til að kaupa sér BMW á hagstæðum kjörum og flytja heim. Með aðstoð “kunningja” er bílinn keyptur og settur á hafnarbakkann e-r staðar í Þýskalandi. Rúmlega viku síðar leysir vinurinn bílinn úr tolli. Einhvern tímann á þessari viku var kílóinu komið fyrir í bílnum - mjög líklega af áðurnefndum “kunningja” sem hafði milligöngu um allt í Þýskalandi. Tíminn hefur svo rennt stoðum undir þær líkur. Þessi “kunningi” hefur síðan 1998 verið tekinn fyrir fíkniefnasmygl m.a. í Þýskalandi og er wanted af Interpol á flótta einhver staðar undan íslenskri réttvísi.

Þegar bílinn var laus úr tollinum - með gervipakkanum frá Fíknó - höfðu vafasamir aðilar samband við vininn eftir vafasömum leiðum með viðeigandi hótunum (sem verður ekki farið í nánar hér) og honum gert grein fyrir pakkanum í bílnum og að hann skuli fara með pakkann á ákv. stað annars… Vinurinn færði pakkann 8. mars og þá fór boltinn að rúlla.

Í gervipakkanum var sendir sem veitti lögreglunni upplýsingar um það hvar pakkinn væri - en eins fáránlega og það hljómar þá kláruðust … smellið hér til að lesa meira! –>

Sönn

Sönn íslensk sakamál

Af tilefni 10 ára gæsluvarhaldsafmælis birtist eftirfarandi færsla - and there is more to come!

1997-1998 starfaði ég við útkeyrslu, lager- og sölustörf fyrir fyrirtæki sem seldi og dreifði myndbandspólum (og síðar DVD) í verslanir og söluturna um allt land. Væri vart frásögufærandi nema fyrir þann merka dag sem 9. mars 1998 reyndist verða!

Rúmlega 16:00 er ég að rúlla af stað síðasta rúnt dagsins með pakka/sendingar út á land, n.t.t. á Landflutningarmiðstöðina og svo á Vöruflutningarmiðstöðina. Vinnufélagi og vinur biður mig að taka sig með og “skuttla” sér í leiðinni niður í B&L (sem var þá við Suðurlandsbraut) þar sem hans beið nýlegur BMW sem hann var að flytja inn til landsins frá Þýskalandi. Ekkert mál! Vinurinn fær far - fyrst er farið á Landflutningarmiðstöðina með sendingu og því næst var það B&L - tímaramminn var þröngur og því var ekið ákveðið um götu RVK þar sem leið lág eftir Suðurlandsbraut óðfluga að B&L. Þegar ég er við það að leggja í vinstri beygju á fráreyn inn á plan B&L byrjar ballið…

…bílstjórahurðin er rifin upp í sömu andrá og einhver öskrar LÖGREGLAN - það sama gerist farþegamegin - mín fyrsta hugsun “ahhh djö… keyrði ég of hratt” en var fljótur að sjá að það var ekki málið því þessi einhver sem öskraði LÖGREGLAN reyndist vera heljarmikill lögreglumaður í skotheldu vesti sem reyf mig í einu handtaki (a.m.k. í minningunni) út úr bílstjórasætinu og de samme í jörðina, n.t.t. í snjóskafl á umferðareyjunni og járnaður með hendur fyrir aftan bak! Andartökin þar á eftir gleymir maður aldrei. Í fyrsta lagi allur fjöldinn af lögreglubílum og lögregluþjónum sem voru á svæðinu og í kringum þetta “böst” - hálfgerður heiður :) Í öðru lagi allt liðið í Ellefunni frá SVR (strætó) sem maður horfði í augun á þegar vagninn skreið framhjá - verður maður ekki alltaf “gangster” í þeim augum? Í þriðja lagi og síðast en ekki síst myndi ég sverja fyrir það ef ég vissi ekki betur en augun á sendiferðabílstjóranum á eftir mér við þessa vinstri beygju voru nánast föst á framrúðunni hjá sér - kannski eðlilega - hans fyrstu kynni af hazarmynd í wide screen?
Þegar var búið að koma mér fyrir aftan í lögreglubílinn fór um hugann hvaða grín væri í gangi og var nánast viss um að þetta væri grín, a.m.k. tómt bull þegar lögregluþjóninn tilkynnti mér réttarstöðu mína og að ég væri handtekinn grunaður … Smelltu hér til að sjá meira!
–>