
Þá er það staðfest - Íþróttafélagið Höfrungur á Þingeyri mætir Skallagrími frá Borgarnesi í fyrstu umferð Bikarkeppni KSÍ. Leikurinn er settur á í lok maí og fer fram á Þingvöllum á Þingeyri.
Mörg járn eru í eldinum varðandi ýmsar framkvæmdir í kringum þennan heimaleik og m.a. mun fljótlega hefjast uppboð á þremur lausum sætum í liðinu og jafnvel möguleiki að sá sem býður hæst fái líka að taka 2 aukaspyrnur og víti. Víti í vítakeppni þarf þó að borga aukalega fyrir!
Við Höfrungsmenn erum mjög sáttir með árangur ársins sem komið er - komir lengra í Bikarkeppninni en í fyrra! –>
Þakka hlý orð í commentum og á förnum vegi síðustu daga. Það er að komast taktur á heimilislífið en það sama verður reyndar ekki sagt um skrokkinn - en þetta tekur víst einhverja daga. Ég er á því að við svona aðstæður eins og sl. fimmtudag er góður bíll gulli betri - hér eftir verða bara keyptir jeppar! Leitin er hafin að nýjum fjölskyldubíl, fékk að reynsluaka Pajero á Ingjaldssandi um helgina…
…þannig að maður heldur sig annað hvort við Pajero-inn eða prófar einhverja Ford týpuna

Helgi Bró stóð sig með stakri príði á trompetinu í Eurovision í gær - djö…. hefði verið cool hefðu þeir félagar komist til Serbíu!
Jón Hálfdán og Guðný Stefanía - bestu þakkir fyrir aðstoðina á fimmtudaginn! –>
elli.is hefur verið í höfuðborginni nú í tæpa viku og á engra kosta völ nema koma því hér á framfæri að elli.is getur ekki staðfest, játað eða hafnað þeim orðrómi sem fer fjöllum ofar að elli.is verði í beinni á RÚV á laugardagskvöldið. Fjölmiðlar, frændfólk og vinir hafa verið að beint sínum spjótum til elli.is og leitast eftir viðbrögðum hvort það sé satt eiður ei að elli.is verði á sviðinu í Laugardagslögunum n.k. í atriði Davíðs Olgeissonar, IN YOUR DREAMS.
Að lokum ítreka elli.is aftur að elli.is getur ekki staðfest, játað eða hafnað þessum orðrómi né um leið tjáð sig um æfingar hljómsveitarinnar, dansæfingarnar hjá Jasmin, flugið suður á laugardaginn né önnur atriði er kunna að varða lagið IN YOUR DREAMS.
Eina leiðin til að svala forvitninni er að fylgjast með IN YOUR DREAMS á laugardagskvöldið og ef þú ert ekki viss um þátttöku elli.is þá er bara að kjósa IN YOUR DREAMS nógu oft til að fá bandið aftur á sviðið.
Það eina sem elli.is getur staðfest með vissu er að tengsl eru á milli laga- og textahöfundar og elli.is.
–>

Á Bylgjunni í dag heyrði ég í símatíma hjá þeim félögum í Ísland síðdegis (heyra hér - eftir 49 sek) konu kvarta yfir nýju tóbaksvarnarauglýsngunum þar sem hægt er að kaupa ýmsa banvæna sjúkdóma út í næstu sjoppu! Í rauninni var samtalið eitthvað vandræðalegt því þeir hljómuðu allir á bandi auglýsinganna þarna á Bylgjunni og konan var nokkuð eins síns liðs að kvarta yfir einhverju sem er á allra (a.m.k. flestra) vitorði; Reykingar drepa. Því næst fór hún að kvarta yfir ráðamönnum, m.a. vegna þess að reykingarmönnum hefur verið úthýst hér og þar - þó það nú ands…… væri! Óbeinar reykingar drepa líka!
Skil ekki hvað fær reykingarfólk til að reyna að réttlæta reykingar (beinar/óbeinar) og biðja um einhverja aumkun/vorkun, hvað þá að tala um það opinberlega! Í mín eyru er þetta eins og að réttlæta morð!
Reykingamenn geta kvartað yfir því að vera úthýst en ekki geta þeir kvartað sem hafa látist vegna óbeinna reykinga, fólk eins og Ingimar Eydal, Ellý Vilhjálms. og Haukur Morthens. Reykingamenn ættu því að vera sáttir með það eitt að geta ennþá reykt… þó það sé utandyra - sem eru kannski of mikil fríðindi? 
Eitt meira þeir eiga sem búa til þessar auglýsingar - þeir kunna að hitta í mark! Meira svona og það mætti jafnvel ganga lengra…
Til fróðleiks er tóbaksvarnarlögin að finna hér!
–>

Datt með annað augað á danska spennuþáttinn um Glæpinn, eða á frummálinu Forbrydelsen, Historien om et mord á RÚV í kvöld og tók eftir því að það eru Villar víða. Í þessum spennumyndaflokki er háttsettur borgarpólitíkus í Kaupmannahöfn sem er búinn að gera nokkur mistökin, m.ö.o. drulla uppá bak og er svo að reyna að redda sér upp úr skítnum en sekkur bara dýpra með hverri björgunaraðgerðinni. Þetta væri vart frásögufærandi nema fyrir tvær sakir. Fyrst skal nefna að þónokkur svipur er með danska leikaranum Bent Mejding sem leikur spillta og siðblinda pólitíkusinn Poul Bremer og fyrrverandi og verðandi borgarstjóra Reykjavíkur, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Í annan stað er kannski hið augljósa, að hratt fjarar undan pólitísku lífi Poul Bremer og Vilhjálmur í borgarpólitíkinni, annar í gömlu höfuðborginni og hinn í nýju höfuðborginni! Tilviljun eða…
Ath. þetta kann allt að hljóma sem latína fyrir þá sem ekki þekkja til þáttanna og er viðkomandi aðilar beðið velvirðingar á því. –>
Það virðast fáir, ef einhverjir stjórnmálamenn (á líka við aðrar stéttir) þekkja nógu vel til þegar kemur að því að axla ábyrgð - þeir gera það flestir á pappírunum og í launaumslaginu en ekki þegar á hólminn er komið og menn þurfa að taka afleiðingum gjörða sinna - þá virðist sem önnur lögmál gildi! Nú er t.d. Villi Vill búinn að drulla upp á bak… aftur! með því að vera óskýr og “loðinn” varðandi einhvern lögfræðing og ekki leit Árni Matthísen vel út í máli Þorsteins Davíðssonar Oddssonar! En menn viðarst ekki vita sín mörk og æða áfram!
Held reyndar að stuðullinn á því að Villi Vill verði aftur borgarstjóri sé kominn niður í 1,15 í veðbönkum! Villi gæti þess í stað farið og reynt fyrir sér í dönsku þáttunum um Trúðinn sem er á RÚV á fimmtudögum - yrði flottur þar í aukahlutverki að leika sjálfan sig! –>
Í góðu formi - góður í rúminu
Hvor ætli sé betri í rúminu, sá sem er sterkur, fimur og hleypur eins og vindurinn eða sá sem hangir í sófanum heima hjá sér og safnar aukakílóum og blæs eins og hvalur ef hann þarf að fara út með ruslið? Það þarf ef til vill engan vísindamann til þess að staðfesta hvor það er, en engu að síður eru þeir búnir að rannsaka málið til þess að hafa það á hreinu. Dr. John McKay er vísindamaður sem starfar að rannsókn sem nefnist „öldrun karlmanna í Massachusetts“ og hann hefur bent á að hnignandi farsæld karlmanna í rúminu á sér frekar rætur í kyrrsetulífi en öldrun. Rannsóknin sýndi fram á að 10% karlmanna á aldrinum 40-70 ára eru algerlega getulausir og 50% eiga við umtalsverð reisnarvandamál að stríða. Reglulegar æfingar eru besta leiðin til þess að berjast gegn getuleysi, þannig að ef lýsingin á manninum í sófanum á við um þig, skaltu drífa þig á æfingu.
Meira kynlíf - betri frammistaða
Löngum hefur verið talið að fjarvera frá kynlífi valdi uppsöfnun testosterón hormóns sem meðal annars veldur því að árásargirni verður meiri. Hinsvegar eykst testosterónframleiðsla karlmanna í takt við kynlífið og árangur manna í íþróttum getur þar af leiðandi aukist. Þetta er niðurstaða ítalskrar rannsóknar sem Dr. Emmanuele Jannin við háskólann við L´Aquila gerði. Þegar hann var að mæla magn testósteróns fyrir og eftir meðferð á 80 sjúklingum sem höfðu átt við langvarandi getuleysi að stríða. Fyrir meðferðina var testosterónmagn karlmannana tveir þriðju af eðlilegu magni en þó nægilega lítið til þess að valda getuleysi. Eftir að hafa farið í gegnum þriggja mánuða sálræna eða læknisfræðilega meðferð - sem ekki fólu í sér aðferðir til þess að örva hormónaframleiðslu - jókst testósterónmagnið í líkamanum hjá þeim sem fóru í meðferðina. Sagt er frá þessu í New Scientist tímaritinu og Dr. Jannin segir að það sem íþróttamenn geti lært af þessu sé að kynlíf fyrir keppni geti aukið testósterónmagn líkamans.
Strangt mataræði dregur úr kynlífslöngun kvenna
Nokkur ráð til karlmanna
Draumur margra karlmanna er að konan þeirra sé eins og módel úr nærfataauglýsingu. Þetta gerir tíðarandinn í dag. Margar konur eru beint og óbeint í kjölfarið á því helteknar af því að vera grannar og leggja sig of hart fram í mataræðinu sem getur endað með átröskunarsjúkdómum - allt til að þóknast karlinum. Afleiðingin er áhugaleysi á kynlífi.
Þegar líkaminn fær ekki nægilegt magn af hitaeiningum til að viðhalda sér, fer hann í nokkurs konar neyðarham, konurnar hugsa fyrst og fremst um mat og missa áhugann á öðru - þar á meðal karlmönnum. Þarna eru karlar nánast á milli steins og sleggju, því flestir sérfræðingar halda því fram að karlarnir eigi ekki að hafa áhyggjur af kílóafjölda konunnar, vegna þess að hún eigi að vera í þeirri þyngd sem henni líði vel í. Hinsvegar vilja karlar ekki konur með fullkomna líkama sem hafa engan áhuga á kynlífi og flestir vilja ekki heldur sællegar en akfeitar konur í bólið. Besta ráðið fyrir karla sem vilja koma kynlífinu í lag er því að fara milliveginn. Aðstoða konuna eftir fremsta megni í mataræðinu, stjana við hana til þess að halda skapinu góðu og hvetja hana til að æfa til þess að henni líði vel, sé í formi og langi í kynlíf.
Heilsuhraustir karlar kynæsandi
Karlar eins og leikararnir Sean Connery eða Russell Crowe eru ekki endilega þeir myndarlegustu sem fyrirfinnast, en konur laðast mun frekar að þeirra týpum heldur en horuðum og sætum strákum. Þetta er í það minnsta niðurstaðan í ástralskri rannsókn sem fór þannig fram að konur voru beðnar um að flokka ljósmyndir af karlmönnum eftir því hver þeim þótti karlmannlegur og hver ekki. Þeir sem voru álitnir mjög karlmannlegir voru ennfremur álitnir kynferðislega aðlaðandi a.m.k. fyrir þessar konur sem tóku þátt í rannsókninni. Athygli vakti að karlarnir sem þóttu mest karlmannlegir og kynæsandi voru heilsuhraustastir. Vísindamennirnir leiddu að því getum að ástæðan væri sú að konur hefðu nokkurs konar innbyggða löngun til að vilja maka sem er líklegastur til að búa til heilbrigð börn. Heilbrigðir karlmenn eru líklegri en aðrir til að búa til heilbrigð börn. Samkvæmt niðurstöðunum voru karlar sem voru heilbrigðir yfirleitt álitnir karlmannlegir, sem bendir til þess að hraustleikinn sé í hugum kvenna álitinn kynferðislega aðlaðandi.
Byggt á hugmyndum dr. Sigurbjörns Hreiðarssonar –>