elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for January, 2008

Spaugstofan

Spaugstofan stendur fyrir sínu!
Alla síðustu viku hefur umræðan í þjóðfélaginu snúist um pólitíkina í Reykjavík - þetta hefur verið rætt fram og til baka í öllum fjölmiðlum sem og í öðrum miðlum - og sér vart fyrir endan á þessari umræðu meðal þjóðarinnar. Að sjálfsögðu lét Spaugstofan ekki sitt eftir ligga í umræðunni og kom á framfæri sinni sýn á þessa viðburði í ráðhúsinu í sl. viku. Og ótrúlegt hvað margir þurfa að tjá sig um það hve illa Spaugstofumenn stóðu sig á laugardaginn og margir vilja meina að þeir hafi farið (langt) yfir strikið. Að mínu mati var þetta þáttur í góðu lagi sem speglar samfélagið ágætlega. Spaugstofan er náttúrulega ákveðið þjóðaraðhald fyrir ríkjandi aðila í samfélaginu og því verða þeir að hafa algert tjáningarfrelsi á hlutina eins og þeir sjá þá! Að því ógleymdu að aðilar í pólitík eru að biðja um athygli og þetta er líka athygli… - hver er sinnar gæfu smiður - líka í póli-tík!
Datt inn á síðu þar sem Spaugstofumál eru rædd í - sjá hér - endilega kíkið á þessar umræður… –>

…er

Hvað gerir stjórnmálamaður sem langar að komast á spjöld sögunnar (t.d. borgarstjórastarf) en á lítið eftir af sínum pólitíska ferli? …jú leggur allt að veði og selur sálu sína. Framkvæmir meira að segja plottið án vitneskju og samráðs við flokkssystkini - bara að hann fái stólinn góða þá skiptir annað ekki máli. Allt til að geta verið borgarstjóri í eitt ár við endilok ferilsins. Hver er maðurinn?

Held hreinlega að verðandi borgarstjóri Ó.F.M. hafi lagt á ráðin með atburði gærdagsins strax í október sl. þegar hann átti hugmyndina að þeim meirihluta sem nú fer frá. Hann varð að koma Birni Inga úr rúmi Villa til að geta hoppað uppí það sjálfur nokkrum misserum síðar - sniðugt??! A.m.k. siðlaust! –>

<font

Ólafur “ekki er allt sem sýnist” Magnússon
Með klókindum tókst Bláu mafíunni að komast aftur til valda í RVK. Sú Bláa sleppur ágætlega frá þessu en í klemmunni er verðandi borgarstjóri RVK - Ólafur F. Magnússon sem virðist hafa selt sálu sína umfram hag kjósenda sinna til þess eins að komast í valdastól borgarstjóra - eða bara nákvæmlega eins og ónefndur heimildarmaður kannast við kauðann, yfirborðskenndur læknir með hroka, a.k.a. Ólafur “ekki er allt sem sýnist” Magnússon.
Synd að næstu tveir borgarstjórar, Ólafur & Villi “vissi ekki” Vill skulu vera að komast til valda í borginni - Ólafur með þessum eiginhagsmunahátterni og Villi Vill sem er ennþa með kúkableyjuna eftir klúðrið sl. haust! Traustvekjandi leiðtogar! Eða hvað?
Villi “vissi ekki” Vill –>

<font

Undanfarin misseri hefur verið mikið í umræðunni ráðningin á Þorsteini Davíðssyni Oddssyni í stöðu héraðsdómara. Tel að allir sem þetta lesa þekki til málsins og er viss um að þetta mál hljómar eins í eyru flestra landsmanna - spilling! Magnað að fylgjast með fulltrúum Bláu mafíunnar sem í daglegu tali er kölluð “Sjálfstæðisflokkurinn” verja gjörðir flokksfélaga og er ég viss um að nokkrir tali gegn eigin sannfæringu - en einn fyrir alla og allir fyrir einn virðist vera mottóið (svipað og í handboltanum).
Fulltrúar þeirra bláu virka eins og skólakrakkar sem eru að reyna að verja leyndarmál með mjög veikum málatilbúningi - en það sem bláu krakkarnir fatta ekki og gera sér enga grein fyrir er að ekki bara ég - heldur allir aðrir vita leyndarmálið - þetta var vinagreiði! –>

Ósköp

Set hér inn langa gein sem ég tók af bb.is og bætt við á einstökum stöðum eigin hugleiðingum… vonandi að þetta sé ekki of langt! Þetta er bara svo asnaleg grein að ég stóðs ekki mátið!

Útnefning á Íþróttamanni Ísafjarðarbæjar um daginn fór greinilega fyrir brjóstið á sumum sem hafa uppi stór orð um athöfnina og nefndina, s.s. Snubbótt og slök athöfn íþrótta- og tómstundanefndar við veitingu titilsins íþróttamaður Ísafjarðarbæjar var bæjarfélaginu til skammar.“…sjáfskipaðir pólitískt kjörnir nefndarmenn ákváðu valið á einum fundi eftir eigin smekk og geðþótta.”

Í bréfi íþróttanefndar til íþróttafélaga vegna útnefninga á íþróttamanni bæjarins segir:

,,Við valið er tekið tillit til eftirtalinna þátta”

1. Afrek á yfirstandandi ári ( t.d. landslið, titlar o.s.frv.)
2. Félagsleg hlið (ábyrgð, þátttaka)
3. Fyrirmynd (fyrirmynd barna og unglinga)

Skoðum fyrsta lið, landslið, eini íþróttamaðurinn sem keppti fyrir Íslands hönd af þeim sem tilnefndir voru var glímumaðurinn Stígur Sophusson. Hann var fyrirliði landsliðs Íslands sem sigraði á alþjóðlegu móti í sveitakeppni (ef ég fer með mínu fótboltaliði og keppi á alþjóðlegu móti í Danmörku er ég þá að keppa fyrir Ísland? Er ég þá landsliðsmaður?) í glímu með fullt hús vinninga. Titlar og sigrar á mótum innanlands eru fjölmargir og of langt mál að telja það upp. (Auðveldara að sigra í íþrótt þar sem iðkendur eru bara um 500 talsins) Finnst á leitarvél bb.is undir glíma, eða Stígur. Sérsambönd ÍSÍ velja árlega íþróttamann og íþróttakonu ársins ásamt efnilegasta íþróttafólki landsins í hverri íþróttagrein. Glímusamband Íslands útnefndi Stíg sem efnilegasta glímumann á Íslandi yngri en 20 ára. Enginn af öðrum tilnefndum til íþróttamanns Ísafjarðarbæjar hlaut slíka viðurkenningu sérsambands innan ÍSÍ og titil.

Annar liðurinn, félagsleg hlið Stígs er mjög óvenjuleg og fáir íþróttamenn á Íslandi gætu jafnast á við hann á því sviði. Kynnti og kenndi glímu í nokkrum grunnskólum á norðanverðum Vestfjörðum. (Hvaða íþróttamaður með heilar sellur hefur ekki sýnt, kennt og kynnt sína íþrótt) Sá um kynningu og syndi glímu fyrir fjölda gesta að Hrafnseyri á 17. júní s.l. Stjórnaði kynningu og glímusýningu á sjómannadaginn á Drangsnesi. Kynnti íslensku glímuna í heilan dag (Hefði sennilega unnið hef hann hefði kennt glímuna í heila tvo daga!”#$”#%) fyrir erlenda ferðamenn í Vigur s.l. sumar. Þjálfaði unga glímuiðkendur fyrir íþróttafélagið Stefni á Suðureyri. Hefur lokið leiðbeinandanámi ÍSÍ 1 A,B og C sem er réttindanám þjálfara. (Eins og margir aðrir sem eru með honum á námsbraut í framhaldsskóla) Hefur lokið réttindanámi sem 1. stigs þjálfari sérgreinar á vegum GLÍ. (Margir iðkendur hafa sótt A námskeið síns félags í þjálfun) Hefur tekið dómarapróf (það eru náttúrulega bara vitleysingar sem fara út í dómgæslu - þar liggur hundurinn grafinn!) í glímu og hlotið E dómararéttindi. Stígur er aðstoðarþjálfari hjá Herði með eldri glímustráka.

Þriðji liðurinn, fyrirmyndin, er í flestum tilvikum góð þó finna megi hnökra þar á. (Læt þessa grein ósnerta því hún er bara brandari í heild sinni og minnir á viðtalið skrítna við Kalla Bjarna í Kastljósinu um daginn… Nei ég get það ekki!) Benda má á nokkra íþróttamenn Ísafjarðarbæjar síðustu ára sem hafa haft áfengi um hönd (Hver hefur ekki smakkað það). Það er ekki nokkur vafi á því að gengið var freklega framhjá glímumanninum Stíg Sophussyni (eða hann bara ekki nógu góður á öllum sviðum eða einhver betri en hann á öllum sviðum?) við valið enda kom í ljós að þar lá fiskur undir steini.

Hinar heilögu kýr íþróttanefndar bæjarins ákváðu að meta Stíg óhæfan þó árangur hans stæði vel undir nafnbótinni, hann væri slæm fyrirmynd ungafólksins í Ísafjarðarbæ. Þetta álit nefndarinnar var staðfest af bæjarstjórnarmanni meirihlutans. Ástæðan var sú að Stígur smakkaði áfengi og hefði lent í slagsmálum (Alvöru fyrirmynd!)! Þar hafa nefndarmenn gert sig seka um að trúa upplognum slúðursögnum og túlkað tilvik, sem Stígur hafði ekki frumkvæði að en drógst inní (það eru nú tvær hliðar á öllum málum - það fer bara eftir því hver á í hlut!), til marks um ofbeldishneigð hans. Sem þjálfari Stígs og félagi get ég undirritaður vitnað um að vart er til prúðari, hjálpsamari og drenglundaðri einstaklingur (enda ekki ölvaður - sem betur fer - um miðjan dag) á þeim aldri sem ungir menn vilja verða fullorðnir karlmenn. Sá stimpill sem einstaklingarnir í íþróttanefnd bæjarins hafa gefið hinum unga íþróttamanni á engan rétt á sér. Slúðursögurnar segja hann ráðast á fólk drukkinn og lemja! (Má slá í glímu?)

Hvet ég glímukrakkana hans Stígs í Stefni til að afsanna það, hér í blaðinu, að þjálfari þeirra sé ekki góð fyrirmynd þeirra í alla staði. (Kommon ekki draga börnin inn í þetta - hafa þau oft séð hann utan æfingartímans?) Einnig hvet ég þá atvinnurekendur (og bara alla aðra?) sem hafa haft drenginn í vinnu um að vitna um trúverðugleika hans og traust. Það sama gildir um aðra sem til hans þekkja og kyngja því ekki, frekar en undirritaður, að Stígur sé ekki góð fyrirmynd í íþróttum og daglegu lífi. Í alvarlegu (já urrrra bít´ann) viðtali sem undirritaður átti við Stíg um hans aðkomu að meintum slagsmálum og áfengisneyslu kom eftirfarandi fram, birt með leyfi Stígs. (Eins gott að fá leyfi annars yrði einhver barinn:))

Þeir sem til þekkja vita að Stígur hefur stundað sjómennsku á sumrin og tekið marga túra á veturna í forföllum sjómanna og lifað sig inn í þann heim. Hann hefur þrisvar bragðað áfengi, þ.e. bjór, síðan í júní s.l. Í desember sl. var ungu fólki boðið til afmælisteitis í Guðmundarbúð, á leiðinni þangað ekur bíll framhjá og slettir á Stíg, bíllinn er stöðvaður og farþegarnir (ágætir drengir) sýna mannalæti og segjast taka hann í gegn ef hann sé með einhvern kjaft. Þeir fara út úr bílnum og byrja að ýta á hvern annan eins og hanar. Þegar einn af farþegum bílsins tekur upp stóran stein og ætlar að henda eða slá grípur Stígur í hann og þeytir honum í burtu, viðkomandi meiddi sig á fingri. Bróðir hans ræðst nú til atlögu og verður lítið ágengt. Stígur heldur síðan áfram för sinni og gengur inn í gleðskapinn í Sigurðarbúð, ráðast þá á hann fjórir drengir, þrír af þeim sem voru í bílnum svo og liðsauki. Tekist er hart á og bolur sem Stígur var í rifinn af honum. Fljótlega blanda nærstaddir sér í málið og upphefjast almenn slagsmál. (Þetta er bara eins og eftir Arnald og sagan heldur áfram…)

Næst víkur sögunni að heimsókn Stígs ásamt félögum sínum í Krúsina. Við útidyrnar stendur karlmaður um fertugt með vínglas í hönd. Stígur yrðir á manninn sem splundrar glasinu í andlit hans sem verður þakið glerbrotum. Stígur þrífur mannin á loft og fellir á jörðina og heldur honum föstum í sínum heljargreipum nokkra stund (ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að þetta væri úr Íslendingasögunum), sleppir síðan manninum sem hleypur til lögreglunnar og klagar (Hver er að klaga núna?) drenginn fyrir ofbeldi. Að þessum viðburðum voru mörg vitni, og það skal koma fram að drengirnir sem áttu hlut að máli hafa sæst við Stíg og er með þeim ágætur kunningsskapur (Bara eins og hjá Kalla Bjarna og peningamönnunum) eins og jafnan áður enda skólafélagar.

Ef hinar vammlausu konur í íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar, þær eru í meirihluta nefndarmanna, hafa ekki gert sér grein fyrir muninum á hegðun og heimi ungra karla sem stöðugt eru að sanna karlmennsku sína hver fyrir öðrum og ungra, prúðra stúlkna, þá er svo sannarlega kominn tími til að þær átti sig á þeim mun. Verið var að meta íþróttafólkið fyrir frammistöðu á árinu 2007 við útnefningu íþróttamanns Ísafjarðarbæjar og ef nefndarkonur og menn hafa eitthvað upp á Stíg að klaga frá fyrri árum er það heldur langsótt og jaðrar við einelti. (Þessi klausa hlýtur að vera eitthvað persónulegt tuð höfundar við nefndina)

Lokaorð
Eins og fram kom í greininni var Stígur eini íþróttamaðurinn sem keppti á alþjóðlegu móti og ekki nóg með það heldur leiddi landslið Íslands í sveitaglímu til sigurs í mótinu sem fyrirliði og með fullt hús vinninga. Hann var einnig eini íþróttamaðurinn sem sérsamband íþróttagreinar innan ÍSÍ valdi sem efnilegasta íþróttamann (það er ekki nóg að vera efnilegur) sinnar greinar á Íslandi. Það er verðugur titill.

Til marks um æfingahörku Stígs læt ég fylgja með tvær sögur sem lýsa honum vel. Sem vélstjóri vann hann heila nótt við að taka vélina upp í Páli Pálssyni. Verkinu lauk kl. 07:00 um morguninn. Stígur fór þá heim í bað, borðaði morgunverð og var mættur á æfingu á afreksíþróttabraut MÍ kl. 08:00. Flestir hefðu farið að sofa af sjálfselsku. Stígur hefur í allt haust farið reglulega til sjósunds frá kajakaðstöðu að skipasmíðastöð og til baka til að herða líkama sinn og andlegan styrk. Slíkt er afrek út af fyrir sig. (Þessi klausa kemur nú upp um höfundinn hve hrikalega hlutdrægur hann er í sínum skoðunum - það hefði eflaust ekki skipt máli hver ynni - það yrði bara kvartað og tautað ef hans maður ynni ekki!)

Hvernig er það orðið með verstfirska karlmenn nú til dags? Eru Vestfirðingar almennt orðnir aumingjar og dúkkur upp á punt? Hvernig væri að heiðra strákinn á einhvern hátt (þannig að ef hann hefði fengið blómvönd þá skipti allt ofantalið ekki máli?) í stað þeirrar meðferðar og niðurlægingar sem hann hefur mátt þola af hendi pólitískra nefndarmanna bæjarins. Hann á það skilið.

Nýárskveðjur,
Hermann Níelsson, glímuþjálfari Harðar. …og forsvarsmaður Afreksbrautar menntaskólans - sem er búinn að koma sér í smá siðferðislega klemmu næst þegar hann hittir a.m.k. einn af nemendum sínum - Gönguskíðakonuna Sólveigu Guðmundu Guðmundsdóttur sem var kjörin íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2007!

E.S.
Í reglugerð ÍSÍ samþykkt af íþróttaþingi um íþróttir barna og unglinga eru íþróttafélög og bæjarfélög sem veita titla íþróttamanns og konu, hvött til að tilnefna ekki börn og unglinga. Velja frekar eldra íþróttafólk sem hefur sannað sig í fullorðisflokkum. Börnin sem keppa í yngri flokkum eiga framtíðina fyrir sér og munu koma til greina síðar ef þau halda áfram iðkun keppnisíþrótta. Börn og unglinga má hins vegar heiðra á þeirra vettvangi. (er maðurinn að meina fyrir sinn mann eða Íþróttamann Ísafjarðarbæjar 2007)H.N.

Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2007 (bb.is 7. janúar 2007)
Gönguskíðakonan Sólveig Guðmunda Guðmundsdóttir var kjörin íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2007. Sólveig hefur æft skíðagöngu hjá Skíðafélagi Ísfirðinga í átta ár. Hún er ein efnilegasta skíðagöngukona landsins og er í Unglingalandsliðshópi Íslands í skíðagöngu. Sólveig náði frábærum árangri á árinu 2007, hún landaði sex Íslandsmeistaratitlum og er auk þess tvöfaldur bikarmeistari. Á vef Skíðafélags Ísfirðinga, snjor.is segir að hún sé í stöðugri framför og eigi bjarta framtíð fyrir sér í skíðagönguheiminum. Þar segir ennfremur: „Sólveig er dugleg og fylgin sér og leggur sig ávallt 100% fram á æfingum og í keppnum. Hennar ástundun er óaðfinnanleg. Sólveig er reglumanneskja á áfengi á tóbak og er frábær fyrirmynd hvar sem hún kemur.“

mbk EÖE –>

Say

kallibjarna.jpg –>