elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for December, 2007

Meistarar!

sigurv2007.jpg
Í gær fór fram Jólamót Hörfungs í í knattspyrnu í Íþróttamiðstöðinni á Þingeyri. Fjögur lið, með alls 18 leikmenn mættu til leiks en tvö lið mættu ekki vegna veðurs.
Eftir tvöfalda umferð og úrslitaleik stóð lið Hjalta & co. uppi sem sigurvegari. Hjalti & co. sigraði lið Þórs Lína & co. í úrslitaleiknum, 1-0. Lið Hjalta & co. sigarði alla sína leiki í gær nema einn, gegn Guðrúnu & co. sem fór 3-3 eftir að stúlkurnar í Guðrún & co. höfðu haft forystu mest allan leikinn.
Lið Þórs Lína & co. komst í úrslitaleikinn vegna hagstæðari markatölu en lið Emils & co., munaði þar tveimur mörkum.
Alls voru skoruð 58 mörk í leikjunum 13 eða um 4,5 mörk í leik þannig að þeir fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína í Íþróttamiðstöðina í gær fengu fjöruga leiki, fjölda marka og um leið fjölda glæstra tilþrifa.
Skotmeistari Höfrungs 2007 - Pétur Aðalsteinsson ásamt Óttari syni sínum.
Þegar boltasparkkeppnin var hálfnuð kepptu leikmenn í gestaþraut sem að þessu sinni fólst í að hitta í markið frá miðju en þess ber að geta að ýmsar hindranir og fyrirstöður voru í markinu. Eftir langan bráðabana við Róbert Aron Pálmason var það Pétur Aðalsteinsson úr liði Emils & co. sem sigraði í gestaþrautinni og hlýtur nafnbótina „Skotmeistari höfrungs 2007”
Til gamans má geta þess að lokum að lið áhorfendur í stúkunni í gær ákváðu að framvegis verði lið Emils & co. kallað „Tengdarsynir Þingeyrar”.

Sparisjóður Vestfirðinga styrkti mótið og á bestu þakkir skilið fyrir stuðninginn.

–>

JÓLAMÓT

Íþróttafélagið Höfrungur í samvinnu við Líf & fjör kynnir

    Jólamót 2007

Sunnudaginn 30. des. verður Jólamót Höfrungs í knattspyrnu.
Ef þú hefur áhuga þá þarf að hafa eftirfarandi í huga…
• Mótið fer fram í Íþróttamiðstöðinni á Þingeyri.
• Spilaður verður klassískur innibolti;
o 4 inni á (þ.e. 4 úr hvoru liði)
o boltinn útaf aftur fyrir og útaf upp fyrir
o má skora alls staðar á vellinum!!!
o ekki verja með höndum – nema þeir leikmenn sem eru skráðir kvenkyns skv.
fæðingarvottorði mega nota arma að vild innan vítateigs.
• Mótið hefst klukkan 12:00 og stendur fram í c.a. 4 klst.
• 4 - 5 leikmenn mynda eitt lið, þ.e. 1 varamaður-ekki fleiri!
• Mótanefnd gefur út fjölda og lengd leikja um leið og skráningu í mótið er lokið. Líklega verður
leikurinn 8 min. og a.m.k. 5 leikir á lið.
• Nánari mótsreglur er að finna á mótsstað.
• Þegar mótið verður hálfnað er GESTAÞRAUT, þ.e. allir þátttakendur geta tekið þátt í léttri þraut
með tilheyrandi verðlaunum.
• Skráning er hafin og stendur yfir til og með fimmtudeginum 28. desember. Hægt er að skrá
lið/keppendur í síma 897-8636 (Ellert) eða í afgreiðslu Íþróttahússins.
• Þáttökugjald er 500.- íslenskar krónur – greiðist fyrir fyrsta leik.
• Mótið er fyrir alla fædda 1905-1992! Ef einhverrar undanþágu er óskað, þ.e. til að notast við eldri
eða yngri leikmenn skal ræða slíkt við mótsstjóra.
• Strax á laugardeginum 29. des. verður hægt að komst yfir leikjaskipulag mótsins. Líklega á
www.elli.is

En í sem fæstum orðum; Fótbolti kl. 12:00 30/12
Þátttökugj. 500 kr.-Skrá fyrir 23:59 28/12.-í síma 897-8636!

Sigurvegarar 2003
Sigurvegarar 2004
Sigurvegarar 2005
Sigurvegarar 2006 –>

DeeDee

Þá er Soprano´s á enda og var endirinn snubbóttur og bíður uppá margar vangaveltur hvað gerðist næst…
Hver man ekki eftir DeeDee & Hunter…
Í gærkvöldi - sem er by the way lélagsta sjónvarpskvöldi vikunnar - var mér hugsað til Rick Hunter og Dee Dee McCall (sú var heit þá) sem héldu fyrir manni spenntum milli vikna á Stöð 2 undir lok níunda áratugsins - var hugsað til þess að eflaust er minningin betri en þættirnir í raun og veru - svona líkt og með The Police Academy-myndirnar!
Bara góð í minningunni!

Tók hraustlega á því á Facebook í byrjun mánaðarins en nú er sú bóla alveg að hjaðna en maður verður að vera eins og hinir, með facebook, myspace og heimasíðu!

Loksins komin einhver samkeppni í Vestfjarðardeildinni eftir að hafa slakað fullmikið á er stjóri The Team að gera sér einhverjar vonir um sigur í vor… sá lifir í blekkingu!

Metrar á sekúndu og ofsaveður eru orðin í dag…

og að lokum LIFI LIVERPOOL!

–>