elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for November, 2007

Þorvaldur

Þobbi Sveins
Þorvaldur Sveinn Sveinsson undirritaði núna rétt í þessu 3ja ára framlengingu á samningi sínum við Víking. Þessi 19 ára landsliðsmaður er því samningsbundinn uppeldisfélaginu sínu til loka árs 2010.

Þorvaldur fékk fyrst tækifæri hjá Sigurði Jónssyni þáverandi þjálfara liðsins í 1. deildinni 2005 og á að baki 27 leiki fyrir meistaraflokk Víkings.

Þá hefur hann verið fastamaður í U17 og U19 ára landsliðum Íslands.

Hann hefur tekið þátt í mörgum verkefnum þeirra landsliða og á 14 leiki og eitt mark að baki með þeim.

Þorvaldur lék alla 18 leiki Víkings í Íslandsmótinu síðastliðið sumar.
–>

<font

Þekkir þú þetta?
Hvar enda þessi alheimsyfirráðartilburðir jaðarhópsins sem kennir sig við femínista?

Núna er verið að suða í Agli Egils vegna hlutfalls gesta í þáttunum hans og einnig er verið að fetta fingrum í það hvort nýburar verði settir í bleikt eða blátt á vökudeild eftir fæðingu!?%#”$&”?!!

Það er ótrúlegt hvað aðilar á vegum þessa hóps komast mikið í fjölmiðla og þá aðallega til að segja öðrum frá því hvað allt er óréttlátt varðandi hluti/þætti sem 0,0eitthvað prósent þjóðarinnar spáir í en varðar þó 90,eitthvað prósent þjóðarinnar! Unbiliveble!
En þessi hópur vill alls staðar inn og vill ríkja og drottna nánast all over í nafni jafnræðis. Hvar endar þetta. Vonandi bara ekki þeim í hag! :)

–>

Alveg

Hvað eru þessir sporvagnabílstjórar að hugsa…
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir, að undanfarið hafi allmörg mál komið á borð lögreglu, sem veki upp ýmsar spurningar um hátterni fólks. Dæmi um það sé uppákoma í Vogahverfinu þar sem bíll var kyrrstæður á miðri akbraut. Ökumaður, sem á eftir kom flautaði því á bíllinn fyrir framan en ökumaður hans, sem var að tala í síma, vatt sér þá út og skyrpti á þann sem flautaði.

Á Vesturlandsvegi varð ámóta atvik en þar var ökumaður sem flautaði á annan, eltur uppi og hótað öllu illu.

Á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar kom til handalögmála þegar tveir ökumenn biðu eftir grænu ljósi. Annar þeirra hafði reykspólað heldur hressilega að mati hins en þegar sá síðarnefndi vildi koma athugasemd sinni á framfæri fór allt í bál og brand, að sögn lögreglunnar.

Í Grafarholti ofbauð manni ofsaakstur í tiltekinni götu. Hann setti því kúst fyrir framan bíl glannans sem reiddist því mjög og sló til hins.

Í Árbæ kom upp svipað mál en þar var manni svo misboðið að hann lagði bíl sínum fyrir framan innkeyrslu hjá meintum ökufanti. Sá fór því hvergi fyrr en lögreglan kom á staðinn og skakkaði leikinn.

…sem fyrr segir alveg týpískar aðstæður fyrir elli.is að lenda í - að verða á vegi einhvers vitleysings í umferðinni sem veit ekkert í sinn haus! :)
–>

Óþjónusta,

Ekki er hægt að hringja og panta vörur í hinni nýju Toys’R'us! Þegar spurt var fyrir um af hverju ekki þá var svarið á þá leið… verslunin getur ekki ábyrgst (verið viss um) að korthafinn eða sá sem hringir og pantar sé sá sem hann segist vera - verslunin ætlil ekki að taka áhættu á að þurfa að fá vörur endursendar eða eitthvað annað vesen - líkt og ótal (ef ekki allar aðrar) verslanir á landinu gera. Samt sendi sama fyrirtækið vörubæklinga á öll heimili í landinu - sannkölluð Óþjónusta við landsbyggðina. P.s. þetta voru virkilega svör forsvarsaðila fyrirtækisins! ATH. þessi þjónusta er í boði hjá Leikbæ.

Björgólfur sr. styrkir innlenda þáttagerð sem verður á RÚV (alveg óháð þátttöku RÚV) og aðilar tengdir öðrum ljósvakamiðlum hafa nánast grénjað í eyru almennings yfir því að Björgólfur vilji leika við Palla Magg og co. hjá RÚV en ekki aðra. Ætli hinir aðilarnir eigi ekki áþekka og svipaða leikfélaga. Þetta hefur hljómað eins og hjá leikskólabörnum í sandkassaleik þegar grenjuskjóðurnar hafa verið að klaga Björgólf.

…og að lokum smá frétt af mbl.is - sem á vel við m.v. umræðuna á undanförnu á www.elli.is
Lögregla, sem handtók Salvatore Lo Piccolo, valdamesta guðföður mafíunnar á Sikiley í vikunni, fann einnig við húsleit lista yfir 10 boðorð, sem félagar í glæpasamtökunum Cosa Nostra virðast eiga að fara eftir. Þeir verða m.a. að vera stundvísir, forðast bari og sýna mafíunni algera hollustu.
Að sögn blaðsins Daily Telegraph ber listinn, sem er vélritaður, yfirskriftina: Réttindi og skyldur. Var blaðið meðal pappíra, sem Lo Piccolo var með í leðurtösku þegar hann var handtekinn.
Blaðið hefur eftir sérfræðingum í málefnum mafíunnar, að listinn bendi til þess að leiðtogum glæpasamtakanna blöskri hegðun yngri manna, sem gengið hafa til liðs við mafíuna á undanförnum árum.

Matteo Messina Denaro, sem nú þykir líklegur arftaki Lo Piccolo, ekur m.a. um á Porsche, og nýtur mikillar virðingar meðal ungra og metnaðargjarna félaga í mafíunni.

Reglurnar 10 eru eftirfarandi:

1. ) Enginn getur kynnt sig beint fyrir öðrum vinum okkar. Þriðji aðili verður að sjá um það.
2. ) Aldrei horfa á eiginkonur vina.
3. ) Aldrei láta sjá sig í návist lögreglumanna.
4. ) Ekki fara á krár og klúbba.
5. ) Alltaf vera til þjónustu reiðubúinn því Cosa Nostra er skylda - jafnvel þótt eiginkonan sé í þann mund að fæða barn.
6. ) Mæta verður á alla fundi sem boðað er til.
7. ) Sýna verður eiginkonum virðingu.
8. ) Þegar óskað er eftir upplýsingum verður svarið að vera sannleikanum samkvæmt.
9. ) Ekki má ráðstafa peningum sem tilheyra öðrum eða öðrum fjölskyldum.
10. ) Fólk sem ekki getur tilheyrt Cosa Nostra: Hver sá sem á nákominn ættingja í lögreglunni, hver sá sem á svikulan ættingja, hver sá sem hegðar sér illa og virðir ekki siðareglur og gildi.

over! –>

Kvikmyndagerð!

The Family
Fjölskyldan fyrir vestan gerir innárás í Fossvoginn á miðvikudaginn og ætlar sér að stoppa í borg óttans í rúma viku.
Tilefnið er að fjölskyldumeðlimir hafa verið boðaðir suður í kvikmyndatöku hjá Demeter ehf. Handritið sem stuðst er við byggir á anda jólanna og verður frumsýnt um komandi jól.
Fjölskyldan gerir sér vonir um að hitta mann og annan í þessari Sódómaferð - sjáumst!

p.s. að gefnu tilefni skal tekið fram að hér er ekki átt við Fjölskylduna í merkinginunni La Familia (a.k.a. Mafían).
–>