elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for October, 2007

Eru

Í kjölfar þess að norska lögreglan hefur upprætt það sem kallað hefur verið Kebab-mafían er vonandi að lögregluyfirvöld hérlendis komist ekki á snoðir um tilvist hinnar alræmdu Kennara-mafíu í ónefndu sjávarþorpi á NV-Vestfjörðum. Meðlimir mafíunnar hafa unnið sér það til tekna og frægðar að vera samheldin hópur sem vinnur ábyrgðafullt starf á fagmannlegan hátt. Hins vegar er hætt við því að uppljóstrarar lögreglunnar tilkynni yfirvöldum um starfsstöð mafíunnar í einhverju svekkelsis- og öfundarkasti í garð hópsins sökum þess að það fá ekki allir að leika við meðlimi mafíunnar.
Á meðan lögreglan hefur ekki enn upprætt starfsemina eru armar mafíunnar opnir öllum þeim sem ná inntökuskilyrðunum, þ.e. að búa yfir heilbrigðri skynsemi.

Kennara-mafían starfar undir dyggri leiðsögn og verndarvæng Skólastjóra-mafíunnar.

–>

Bræðraáskorun!

Áskorun bræðranna!

Jæja bræður… hér kemur áskorun ársins sem fellur vel að þjálfunaráætlun ykkar - a.m.k. HME og VS - veit ekki með litla kónginn í Víkinni en það kemur bara í ljós.

Áskorun ársins felst í þátttöku í þremur af eftirfarandi fjórum þrekraunum á næsta ári (sumar).
28. júní - Óshlíðarhlaup - 10 km.
19./26. júlí - Vesturgatan - óbyggðarhlaup - 10 km eða 24 km
16. ágúst - Reykjavíkurmaraþon - 10 km.
6. september - Þríþraut VASA2000 - Synda 700 m., hjóla 17 km. og hlaupa 7 km.

How about that brothers! Nægur er fyrirvarinn til æfinga og undirbúnings. Viljið þið koma með einhverja gagnáskorun?

EÖE

p.s. kannski óþarfi að minnast á það… but - ég ætla að vera á unda ykkur í öllum hlaupunum! :)

p.s.II. aðrir áhugasamri um þátttöku í áskoruninni er velkomið að sækja um þátttöku - tala nú ekki um þeir sem telja sig eiga roð í bræðurna ;) –>

Mynd

Hver er á myndinni?
Set hér inn mynd af Val haldandi á Þóri með dyggri aðstoð Ömmu Ernu sem hefur yngst um nokkur ár eftir góða hleðslu og hvíld á Spáni og með aðstoð the Pink drink. –>

10.

Á sama tíma og umræðan er í gangi hvað ungt fólk (og aðrir) hafi öflug og góð laun í m.a. ýmsum þjónustustörfum held ég að þjónustustigið fari versnandi - ætli hinn almenni alþýðumaður sem er nú komin með hærri laun en áður þekkist missi ekki sjónir af tilgangi og markmiði starfsins - þ.e. að sinna viðskiptavininum eftir bestu getu… hringdi í tvö ónefnd þjónsutuver í vikunni, hjá Hive.is og Kaupþingi og svörin sem maður fékk voru svo snubbótt og harðsoðin að engin hjálp hvað þá þjónusta fylgdi máli þjónustufulltrúanna - þeir bara svöruðu einhverju til að segja eitthvað til að losna við kúnann af línunni og halda áfram að telja saman yfirvinnutímana sína og finna út heildarlaun mánaðarins! Svörin voru eitthvað á þessa leið… Hjá Hive; ekkert netsamband, humm - bilun í ljósleiðara - unnið að viðgerð - bless! Hringdi svo aftur og fékk samband við annan gaur og bilunin í ljósleiðaranum reyndist vera “frosin” router. Hjá kaupþing vantaði mig ákveðna aðstoð í heimabankanum; hummm nei þetta er ekki hægt en verður hægt síðar á árinu… eftir 30 min. leit í heimabankanum fann ég það sem mig vantaði - án aðstoðar! :)
Erfitt að fullyrða en mig grunar að þarna hafi verið á ferðinni eitthvað 10. bekkjar-drop-out-lið sem hefur ekki persónulegu gildin í lagi!

Roger-over and out! –>

Hvor

Á hefðbundnu sunnudagshugarflugi í gær - meðan sár helgarinnar voru að skríða saman (Víkingar fallnir og andleg sem líkamleg átök í smalamennsku) - var mér hugsað til Vimma og Þobba og í framhaldinu kom þetta… á þessu herrans ári 2007 eru löglega taldir sem fullorðnir einstaklingar á Íslandi allir þeir sem fæddust árið 1989 - tel Vimma (´86) og Þobba (´88) með.

-Þegar þeir fæddust kunnir ég að skrifa, lesa, leggja saman, draga frá og hluta af margföldunartöflunni.

-Þeir muna sama og ekkert eftir Reagan-tímabilinu og fréttu aldrei af því þegar reynt var að drepa hann. Þeir muna heldur ekki eftir leiðtogafundinum sem haldinn var í Höfða og vita fátt um Gorbatsjoff.

-Þeir voru ekki kynþroska þegar Persaflóastríðið hófst.

-Fyrir þeim hefur sami páfinn verið í Vatikaninu síðan þau fæddust.

-Þeir sungu aldrei “We are the world, we are the children”.

-Þeir voru 5 ára þegar Sovétríkin féllu. Þeir muna fátt eftir kalda stríðinu og síður eftir Austur- og Vestur-Þýskalandi, þó svo að þeir hafi heyrt af þeim í sögutímum.

-Þeir eru of ungir til þess að muna eftir því þegar Challenger-geimflaugin sprakk og munu sennilega aldrei vita hvað Pepsi-áskorunin var.

-Fyrir þeim hefur AIDS verið til alla ævi.

-Þeir léku sér aldrei með ATARI-tölvuleiki, geisladiskurinn kom á markaðinn 2 árum áður en þeir fæddust, þeir hafa aldrei átt plötuspilara og hafa sennilega aldrei leikið sér með Pac-man.

-Þegar talað er um BETA-vídeóspólur hafa þeir ekki hugmynd.

-Star Wars og Súperman finnast þeim frekar slappar myndir og tæknibrellurnar ömurlegar.

-Hafa ekki hugmynd um að einu sinni var ekkert til nema Ríkissjónvarpið sem fór í frí á fimmtudögum og í júlí. Þeir muna heldur ekki eftir því þegar Rás 2 var eina rásin í útvarpinu fyrir utan Rás 1, og sú eina sem spilaði annað en klassíska tónlist.

-Þeir hafa áræðanlega aldrei hlustað á útvarpssögur eða Lög unga fólksins eða Óskalög sjúklinga og sjómanna og Bessi Bjarnason hefur aldrei verið yngri.

-Hafa ekki séð svart-hvítt sjónvarp og þeim finnst fáránlegt að þurfa að hækka og lækka og skipta um stöð án þess að hafa fjarstýringu.

-Þeir fæddust ári eftir að Sony hóf sölu á vasadiskóum og fyrir þeim hafa hjólaskautar alltaf verið línuskautar.

-Þeim hefur alltaf þótt farsímar og PC tölvur vera óskaplega eðlilegir hlutir, ekkert nýtt.

-Þeir hafa ólíklega séð Húsið á sléttunni, Þórð húsvörð í Stundinni okkar og Einu sinni var.

-Þeir hugsa aldrei um “Jaws” þegar þau fara í sjóinn, Michael Jackson hefur alltaf verið hvítur…og hvernig er mögulegt að John Travolta hafi einhvern tíman dansað, svona feitur maður! Olivia Newton-John? HVER??!!

- Þeim finnst lítið fyndið að vitna í Með allt á hreinu, Nýtt líf og Stellu í orlofi. Þeir muna ekki hverjir Þorgeir Ástvaldsson, Geiri Sæm og Herbert Guðmundsson eru. Nafnið Hemmi Gunn segir heldur ekki margt.

-Madonna hefur alltaf verið fræg og nöfn eins og Duran Duran, Wham, Culture Club, Thompson Twins, Tears for Fears, Rickshaw, Limahl, Terence Trent D´Arby, Talking heads og Modern Talking hljóma ekki kunnuglega.

- Þeir muna ekki eftir BMX-hjóla tímabilinu og break-dance tímabilinu. Þeir hafa ekki hugmynd um hvað Millet-úlpur og Don Kano voru merkileg fyrirbæri.

-Þeir vita sennilega ekki að strætó var einu sinni grænn og að tíkallar og fimmtíukallar voru seðlar. Þau hafa aldrei keypt fimmaurakúlur og muna ekkert eftir því að hafa notað aura.

-Þeir vita ekki hvað Karnabær var og hafa aldrei séð Tommaborgara sem merkilegt fyrirbæri. Þeir hafa alltaf getað pantað mat heim og alltaf verið vön tilveru kreditkorta.

Munið kæru lesendur að þetta fólk er unga fólkið í dag.

Merki þess að þú ert ekki í þeim hópi og ert farin/n að eldast;

1. Þegar þú lest þennan texta og brosir.; )

2. Þegar þú stundar íþróttir og lætur alla vita með miklu stolti.

3. Þegar þú geymir bækur, vatnsglas og vaselín á náttborðinu.

4. Þegar fyllerí og kelerí eru ekki lengur umræðuefni.

5. Þegar börn tala við þig eins og þú talaðir við “fullorðna fólkið” fyrir stuttu.

6. Þegar “fullorðna fólkið” talar við þig eins og jafnaldra.

7. Þegar þú þarft meira hálfan dag til þess að jafna þig eftir vökunótt.

8. Þegar vinir þínir eru allir giftir.

9. Þegar litla frændfólkið þitt er farið að sníkja sígarettur eða áfengi.

10. Þegar litla frændfólkið þitt veit meira um tölvur en þú.

11. Þegar þú getur farið á ströndina og eytt heilum degi án þess að fara í sjóinn.

12. Þegar þú stundar líkamsrækt í fötum sem fela líkamann í stað þess að sýna hann.

13. Þegar þú vilt frekar hitta vini þína í stað þess að kjafta klukkutímum saman í símann.

14. Þegar þú veist hvað þú vilt.

15. Þegar þér líst betur á afslöppunarkvöld en partýkvöld.

16. Þegar þú horfir á fréttir og Kastljós og hefur virkilega áhuga.

17. Þegar þú lest Moggann í heilu lagi og hefur skoðun á næstum öllu.

18. Þegar þú ert aldrei spurð/ur um skilríki

19. Þegar þú og vinir þínir eruð farin að finna grá hár.

20. Þegar þú ákveður að benda vinum og félögum á þessar staðreyndir sem hafa áræðanlega gaman af því

This is Michaił Gorbaczow (Gorbatsjoff)

Líf og fjör!
–>