elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for August, 2007

Enski!

Enski boltinn farinn að rúlla og annað vetrarstarf að skella á. Ómissandi hluti af enska boltanum er Vestfjarðardeildin - sem líkt og getraunir - gerir leikinn skemmtilegri. Áberandi núna fyrstu umferðirnar í enska hvað markmenn eru að klikka… Fridel og Lehman í dag, Tony Warner búinn að gefa tvö mörk og svo er Jesper Schmeichel frekar taugaveiklaður á köflum. …og nú er dómarinn í Liverpool leiknum að gera uppá bak!

Öll fjölskyldan er nú komin undir saman þak og allir í góðum gír! Nýjasti meðlimurinn verður skírður um leið og mannanafnanefnd hefur sagt af eða á með nafnið á drenginn.
kv. EÖE

Feðgarnir! –>

The

The Ellertsson #3
Í kvöld, kl. 20:42 kom í heiminn 4300 gramma drengur sem mældist 54 cm. Allt gekk vel og öllum heilsast “best”. Fleiri myndir á síðu The Ellertssons á barnaneti.is - sjá hlekk til vinstri. –>

Halló

Vá… djöf…. væri ég stoltur Akureyringur núna! Öllum 23 ára og yngri meinaður aðgangur að tjaldsvæðum bæjarins nema í fylgd með “forráðamönnum”!? Ef þetta ratar ekki í skaupið þá veit ég ekki hvað! Hva gera Akureyringar næst - hækka ökuleyfisaldurinn í 30 ár? Og ekkert do do nema eftir fertugt? Trúi ekki að Vinstri græni stór vinur minn, fjallageitin og Akureyringurinn tali fyrir þessu? Eða hvað mr. Stefánsson.

Nú er að renna upp vandamál á höfuðborgarsvæðinu - kennara vantar í alla skóla - þá kemur umræða um leiðréttingu launa við aðrar stéttir - Húrra! - en ekki gleyma því að þetta er árlegt vandamál hjá skólum sem eru ekki á suðvesturhorninu. En fögnum þessari umræðu enda vitleysa að grunnskólakennari fái hærri laun ef hann vinnur á leikskóla en í grunnskóla. Hærri laun!

E –>