Öðruvísi

Síðustu c.a. 10 dagar hafa verið öðruvísi en maður á að venjast á Þingeyri öllu jafna! Í fyrsta lagi er veðrið búið að vera geðveikt - það vita reyndar allir. Í öðru lagi hefur gestagangur verið óvengju mikill á heimilinu; flóttafólk úr Grafarholtinu hefur leitað hælis hjá okkur, Gummi Bryn mætti á eyrina með fylgdarlið, Smári og Hallbera eru á svæðinu þessa dagana og svo eru von á fleirum í afmælisfjörið um helgina - enda um tvöfalt þriggja ára afmæli á ferðinni. Og í þriðja lagi brennur spurning á vörunum; Hvert stefnir samfélagið? A.m.k. miðað við sumar af fréttum vikunnar. T.d. einhverjir að kvarta yfir meðferð lögreglunnar á mótmælendum í RVK - að sjálfsögðu þarf að grípa inní þegar svona vitlleysingar æða eftir götunum - það er jú ekki allt leyfilegt og löggan aðeins að fara eftir lögum sem hið háa Alþingi setti. Á svipuðum tíma og trúðar að mótmæla eru settir í járn var Geiri Goldfinger og netbankasvindlarar á Akureyri sýknaðir vegna formgalla í ákærum og málssókn - mál sem virtust liggja ljós fyrir - svona dauðafæri - en klúðruðust. Til að toppa allt klúður og misskilning þá er hundarottan Lúkas á lífi en mannorð drengsins sem var (klárlega) ranglega ásakaður um “morðið” á hundinum hlaut dauðadóm þökk sé veraldarvefnum og gaspri náungans - og talandi um gaspur þá eru ekki alveg allir að átta sig á því að það sem fólk setur á netið, s.s. blog geta aðrir lesið - og ekki bara vinir þínir, s.b.r. stúlkan sem var að monta sig af barsmíðum og vanvirðingu við laganna verði á blogginu sínu - það virðist enginn ætla sér að vera ábyrgur né gera sér grein fyrir afleiðingum af gjörðum sínum - hvort heldur sem um er að ræða í máli eða riti! Þetta sannar enn og aftur hið fornkveðna; Komdu fram við náungann eins og þú vilt að hann komi fram við þig!
Meðfylgandi mynd kann að þykja væmin í augum sumra en hún lýsir bara þeim kærleik sem ríkir milli Urrrriða-manna!
Get svo ekki annað en endað á því að minnast á öll afmælin í júlí; Bómullarbrúðkaupsafmæli sl. sunnudag, Þobbi 19 ára í dag - til hamingju lobi - og svo hið marg um talaða 2X 3 ára afmæli á sunnudaginn!
later E.
–>

