elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for May, 2007

Höfuðborgin

Þá er síðan komin aftur í loftið eftir uppsfærslu á servernum…

Stóra-bróður stoltið náði háum hæðum í vikunni þegar litli bró ásamt félögum í Víkingi lagði KR í Frostaskjólinu! Kauðinn sá í Norge núna með U-19 - áfram Þobbi!

Maður hefur lengi hugað að stunda meira nám - en miða við nýjustu fréttir frá Svíþjóð þá er það alger óþarfi - maður fær t.d. læknaréttindi í Cherriospakka. Maður þarf bara velja hvaða réttindi maður þarf og sækja um í Svíþjóð!

elli.is er mættur í Höfðuborgina og fer austur fyrir fjall um helgina í brúðkaup! Sjáumst þar!

kv. EÖE –>

Liverpool

Leikur ársins er á morgun! Commenterið ykkar spá - hvernig fer leikurinn og a.m.k. einn markaskorari!

Mun sagan endurtaka sig?

elli.is spáir 2-0 sigri Liverpool.
23 min. 1-0 Riise
54 min. 2-0 Kyut
77 min. Carragher rautt
78 min. Reina ver víti
90 min. Liverpool Evrópumeistari í 6. sinn!
–>

Stjórnarmyndunarviðræður!

Þjóðin hefur beðið spennt eftir fréttum af stjórnarmyndunarviðræðum og nú er komin einhver hreyfing á viðræðurnar - einhverjir sáttir en aðrir hundfúlir - aðallega grænir!
Er með lausn á þessu: segjum að um 10 ráðherrastóla sé um að ræða þá raðast þeir á flokkana eftir fylgi í kosningum, t.d. flokkur með 10% fylgi fær einn ráðherrastól, flokkur með 20% fylgi færi tvo ráðherrastóla o.s.frv. Þá ættu allir möguleika á að komast í ríkisstjórn - þá þyrfti bara að ákveða hver fengi hvaða stól…

Að allt öðru - segja má að sjávarþorpið Flateyri hafi fengið dauðadóm í dag og eigi 3 mánuði eftir ólifaða! Vinnustaður með 130 manns í vinnu á rúmlega 300 manna stað er að hætta og samélagið í heild í hættu… athyglisverð neikvæð þróun þar á ferðinni og verður spennandi að fylgjast með hvernig fer! Til að koma lesendum af höfðuborgarsvæðinu í skilning um hvað er verið að ræða þá er þetta c.a. 40% íbúa sem missa vinnuna eða jafngildi þess að um 50.000 manns myndu missa vinnuna á höfuðborgarsvæðinu á einu bretti! –>

?slenska

Ný er íslenski boltinn farinn að rúlla, hófst á Grundarfirði sl. föstudag. En er ekki alveg að skilja fyrirkomulagið á leikjum í Úrvalsdeildinni, ein umferð dreifist á marga daga og maður er í vandræðum að greina á milli hvar ein umferð hefst og hvar næsta endar - auk þess sem ekki virðist vera um fastir leikdaga að ræða. Þetta gerir áhugamönnum að mínu mati erfiðara fyrir að fylgjast með boltanum og væri annars mjög góðri umgjörð um íslenska fótboltann mikil fengur að hafa fasta leikdaga og umferðir á max 2 dögum. Annars er þetta svo þunnt!

Datt inná gamla auglýsingu með Automan á netinu - hvern man ekki efitr þessu…

–>

Súrir

Já undanfarnir dagar hafa verið súrir! Byrjaði á fimmtudaginn þegar Eiríkur Rauði & íslenska þjóðin komst ekki í úrslit Eurovision. En djö…. var Eiríkur flottur í viðtalinu eftir keppnina - Sigmar frekar vandræðalegur meðan Eiríkur jós fúkyrðum og fullyrðingum í beinni! Mætti eiginlega segja að fullyrðingar Eiríks hafi verið staðfestar þegar úrslitin í Eurovision lágu fyrir í gær! Austur-Evrópumafían sér um sína…

Föstudagurinn endaði ekki eins vel og skipulagt hafði verið - Bikarævintýri Höfrungs fékk skjótan endi á Grundarfirði - en dagurinn var engu að síður eitt ævintýri og m.a. sögulegur fyrir ýmsar sakir. T.d. fyrir þær sakir 3 af 4 Lighthouse-brothers léku saman í liði Höfrungs. Sjá allt og fleira um Bikarævinýrið í síðustu færslu.
Þarna má sjá The Lighthouse-famile seint á síðustu öld!

Svo voru það kosningarnar í gær - spenna og fjör - vonbrigði kostninganna verða að teljast listarnir sem voru í framboði í mínu kjördæmi - engin listi skar sig úr með afgerandi frambjóðendur - nema þá á neikvæðan hátt! Athvæði mitt lág ekki fyrir fyrr en í kjörklefanum og féll í skaut….. Hefði svo viljað sjá enn verra afhroð hjá Framsókn!

Dagurinn í dag stefndi svo í að verða að einhverju leiti súr - alveg þangað til Kewell jafnaði fyrir Liverpool á 88. min. gegn botnliði Charlton. ? kjölfarið lág fyrir lokastaðan í Vestfjarðardeildinni (sem er enskur draumaliðsleikur) - þar sem, engum á óvart, lið undirritaðs - Meyjan - stóð uppi sem sigurvegari eftir 38 umferðir. Lið Meyjunnar hafði betur í toppbaráttunni við Kalla & Smára og munaði 8 stigum á fyrsta og þriðja sæti.
1 Meyjan Ellert Örn Erlingsson 1804
2 FC Hamrar Karl Kristbjarnarson 1799
3 The team Smari Stefansson 1792
Sjá lokastöðuna hér! Dúndur skemmtilegur leikur sem gefur enska boltanum svo sannarlega aukið gildi!

EÖE –>

Úti

Byrjunarliðið!

? Grundarfirði á föstudaginn áttust við UMF. Grundarfjarðar og ?þróttafélagið Höfrungur í knattspyrnuleik í Bikarkeppni KS?. Leikurinn var fjörugur í alla staði; spenna, harka og fjöldi marktækifæra. Leikurinn stýrðist nokkuð af sterkum vindi sem stóð beint á annað markið og var liðið sem lék undan vindi ríkjandi á vellinum hverju sinni. Heimamenn í Grundarfirði skoruðu fyrsta mark leiksins á 72. mínútu eftir hnoð í teyg Höfrungs. ? kjölfarið gerði Höfrungur skipulagsbreytingu á sínu liði og uppskar mark fljótlega í kjölfarið þegar Hjalti Proppé kom boltanum í netið af stuttu færi eftir góðan undirbúning Péturs Jónssonar á 82. mínútu. Hvorugu liðinu tókst að nýta sér fleiri færi í vengulegum leiktíma og því jafntefli, 1-1 niðurstaðan og því þurfti að framlengja leikinn. Mínúturnar þrjátíu í framlengingunni voru í takt við mínúturnar nítíu þar á undan - færi á báða bóga og mikil spenna ríkjandi innan sem utan vallar.
Eftir 120 mínútur af fótbolta var staðan enn 1-1 og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.
? vítaspyrnukeppninni skoruðu Grundfirðingar úr öllum sínum fimm spyrnum en Höfrungur sendi eina spyrnuna yfir markslánna og lokatölur leiksins 6-5 fyrir UMF. Grundarfjörð. Tæpara gat það ekki verið!
Þegar horft er til baka þá geta Höfrungar gengið stoltir af velli, vissulega hefði verið hægt að gera betur á vissum augnablikum leiksins og um leið fara með sigur af hólmi en svona er knattspyrnan.

Byrjunarlið Höfrungs í gær; Karl Óskar Kristbjarnarson, Steinn Ólafsson (Þór Líni Sævarsson 81. min.), Jón Hálfdán Pétursson, Ellert Örn Erlingsson, Hjalti Proppé Antonsson, vilmundur Sveinsson, Hannes H. Haraldsson, Dominik Bochra (Stefán Óskar Orlandi 46. min.), Pétur Eggert Torfason (Torfi Jóhannsson 108.min), Pétur Jónsson. Ónotaðir varamenn; Helgi Snær Ragnarsson, Snorri Karl Birgisson, Ólafur Auðunn Steinþórsson. Liðsstjóri var ?var Örn Reynisson.

Hópurinn sem fór frá Þingeyri lagði af stað kl. 12:00 og kom til baka kl. 02:30 - eftir rúmlega 14 klst. og 720 km. ferðalag.

Mfl. Höfrungs þakkar öllum, leikmönnum, stuðningsmönnum og styrktaraðilum fyrir sinn þátt í þessu Bikarævintýri Höfrungs 2007.

Liði UMF. Grundarfjarðar þakkar Höfrungur fyrir leikinn og óskar þeim góðs gengis í sumar.

Sjá sýn UMF. Grundarfjarðar á leikinn hér! –>

Leikurinn

Til leikmanna mfl. Höfrungs

Hópurinn sem fer og keppir á Grundarfirði á morgun er skipaður eftirfarandi leikmönnum;
1. Karl Óskar Kristbjarnarson
2. Hjalti Proppé Antonssson
3. Jón Hálfdán Pétursson
4. Ellert Örn Erlingsson
5. Steinn Ólafsson
6. Vilmundur Sveinsson
7. Hannes Hrafn
8. Stefán Óskar Orlandi
9. Dominik
10. Pétur Eggert Stefánsson
11. Pétur Jónsson
12. Helgi Már Erlingsson
13. Torfi Jóhannsson
14. Þór Líni Sævarsson
15. Helgi Snær Ragnarsson
16. Snorri Karl Birgisson
17. Ólafur Auðunn Steinþórsson.

Frá Þingeyri fer hópurinn af stað kl. 11:45. Frá Þingeyri fara Steini, Dominik, Pétur Jóns., Helgi Snær, Snorri, Óli, Elli, Hjalti, Jón Hálfdán, Hannes, Þór Líni og Stefán. Hópurinn áætlar að vera kominn á Grundarfjörð kl. 16:00.
Frá Reykjavík koma Helgi Már, Vimmi, Kalli, Torfi.
Frá Borgarnesi kemur Pétur Eggert líkt og sérlegur tæknilegur ráðgjafi liðsins á hliðalínunni, sem verður ?var Örn Reynisson f.v. leikmaður mfl. Höfrungs.

Leikmenn eru beðnir að huga að eftirfarandi þáttum þegar ferðin á morgun er skipulögð;
a) borða orkuríkan kvöldverð í kvöld.
b) hvílast vel í nótt!
c) borða góðan og orkuríkan morgunmat á morgun.
d) borða vel áður en í aksturinn til Grundarfjarðar hefst.
e) hafa nesti meðferðis. Þeir sem aka frá Þingeyri þurfa að skipulegga sínar máltíðir vel á morgun.
f) hafa meðferðis allan þann búnað sem þarf og vinsamlegsat yfirfara hvort að takkaskórnir og legghlífarnar séu ekki örugglega meðferðis - öðru er hægt að redda á staðnum. Leikmenn fá að sjálfssögðu treyju, sokka og stuttbuxur á leikstað. Ef einhver er í vandræðum með einhvern búnað þá hafa samband.
g) Hafa meðferðis hlýjan og góðan utanyfirgalla/upphitunargalla. Allir geta lent í þeirri stöðu að verma bekkinn; annað hvort í upphafi eða eftir skiptingu og þá er betra að hafa eitthvað til að verjast þeim kulda sem er spáð í kortunum. Sniðurgt að hafa með 2-5 teppi.
h) leiknum getur lokið á þrem mismunandi tímum; kl. 20:00 (e. venjul. leikt.), kl. 20:40 (e. framl.) og/eða kl. 21:10 (e. vítakeppni).
i) eftir leik fer liðið að borða og svo haldið heim á leið eins fljótt og auðið er.
j) áætlaður komutími aftur til Þingeyrar er á milli kl. 02:00 & 03:00. Þannig að ef menn ætla að leggja sig eitthvað á heimleiðinni þá er kjörið að taka kodda með!

Unnið er að því hörðum höndum að ná samningum við Þingeyrarvefinn um að vera í sambandi við liðstjórn mfl. Höfrungs og uppfæra helstu viðburði leiksins jafnóðum inn á Þingeyrarvefinn, www.thingeyri.is.

í tengslum við leikinn var gefin út leikskrá sem var dreift í hús. Leikskránna er að finna hér!

Ekki meira í bili, kv. EÖE

–>

Línurnar

Leikmannahópur Höfrungs sem er tillækur í “Bikarævintýrinu” er að taka á sig skýrari mynd og telur nú rúmlega tuttugu leikmenn;

1. Bergur Torfason
2. Dominik Bochra
3. Ellert Örn Erlingsson
4. Guðmundur Jónsson
5. Hannes Hrafn Haraldsson
6. Helgi Már Erlingsson
7. Helgi Snær Ragnarsson
8. Hjalti Proppé Antonsson
9. Jón Hálfdán Pétursson
10. Jón Þorsteinn Sigurðsson
11. Karl Kristbjarnarson
12. Ólafur Auðunn Steinþórsson
13. Rúnar Geir Guðmundsson
14. Pétur Eggert Torfason
15. Pétur Jónsson
16. Snorri Karl Birgisson
17. Stefán Óskar Orlandi
18. Steinn Ólafsson
19. Torfi Jóhannsson
20. Vilmundur Sveinsson
21. Þór Líni Sævarsson

? öðrum vígstöðum eru línurnar einnig farnar að skýrast! Búningarnir í prentaranum hjá Jóa Útherja. Niðurröðun í bíla að smella - vantar bara bíla og bílstjóra! :) Leikskrá mfl. Höfrungs er að verða klár og kemur út á miðvikudaginn og verður dreift í 1500 eintökum í ?safjarðarbæ. ? miðvikudaginn verður hópurinn tilkynntur sem fer til Grundarfjarðar.

Spennan er að magnast upp fyrir leikinn og hefur m.a. undirritaður kastað hanskanum á heimasíðu andstæðinganna - svona aðeins til að auka stemmninguna!
Auglýsing um leikinn af heimasíðu Vatnsberans!

–>

Fréttir

Leikurinn sl. laugardag var sniðinn fyrir áhorfendur, fullt af mörkum og fjör í anda Höfrungs.
Sl. laugardag mættust meistaraflokkar Höfrungs og B?/Bolungarvíkur í æfingarleik í knattspyrnu á aðalvellinum á Þingeyri. Fjöldi áhorfenda og stuðningsmanna lagði leið sína á völlinn til að fylgjast með þessum fyrsta (óopinbera) leik á grasvellinum á Þingeyri. Veðuraðstæður til kappleiks voru ágætar þrátt fyrir kaldann vind. Sömu sögu er að segja af vellinum sjálfum sem stóðst þær kröfur sem til hans eru gerðar m.v. aldur og fyrri störf.
Leikmenn Höfrungs hófu leikinn af krafti og komust í 2-0 á fyrstu 20 mínútunum. ? þeirri stöðu slökuðu Höfrungar full mikið á sem olli því að staðan í hálfleik var 5-2 fyrir B?/Bolungarvík. Mörk Höfrungs í fyrri hálfleik skoruðu Stefán Óskar Orlando (vinur Þórs Lína) og Torfi Jóhannsson Torfasonar beint úr hornspyrnu.
? seinni hálfleik, þrátt fyrir yfirgnæfandi yfirburði, fengu Höfrungar fjögur mörk á sig til viðbótar. Fagnaðarefni seinni hálfleiks var þó markið sem Dominik skoraði fyrir Höfrung og lokatölur leiksins 9-3 fyrir norðanmenn staðreynd.
Mfl. Höfrungs þakka öllum sem leið sína lögðu á völlinn og studdu við bakið á “strákunum okkar”.
Umfjöllun um leikinn á heimasíðu B?/Bolungarvík er að finna hér.
Leikurinn var hluti af undirbúningi mfl. Höfrungs fyrir keppni í Bikarkeppni KS? næsta föstudag gegn UMF. Grundarfirði á Grundarfirði. Spennan fyrir þeim leik hefur magnast með degi hverjum síðustu misseri og mun aukast er líður á vikuna.
? heimasíðu andstæðinga Höfrungs í bikarkeppninni er að merkja að ekki er spennan minni á þeim bænum. Sjá heimasíðu UMF. Grundarfjarðar / Kn.fél. Vatnsberar hér.

Eins og margoft hefur komið hér fram þá mun Þingeyrarvefurinn halda áfram að fylgjast grannt með og flytja fréttir af “Bikarævintýri Höfrungs”.
Tekið af Þingeyrarvefnum 7. maí 2007.
–>

Viðbrögð!

Gaman að sjá hvað síðasta færsla “Hundafárið” fékk fín viðbrögð. Hreint gleðiefni.

Set hér link á lengsta bloggsvar sem ég hef skrifað á þessum tuttugu og ellefu árum. Var að svara bloggfærslu formanns Landsamtaka hjólreiðamanna - ekki orð um það meir hér - heldur sjá hérna.

Nú fer senn að líða að “Laugarvatnshitting” - og nefndin komin til starfa - vísa á Urrrriðann. Hef sett inn upplýsingar um Laugarvatnsliði á undirsíðu hér til hægri.

? gær kom í ljós hve hrikalega öflugur spámaður elli.is er í raun og veru - Liverpool - AC Milan - again! Sjá eldri færslur og spádóma aftar á síðunni. Og í því samhengi er kjörið að kíkja á Liverpool-undirsíðuna hér til hægri áður en hún verður uppfærð 23. maí n.k.

Nú er unnið hörðum höndum að því að tryggja æfingarleik á grasvellinum á Þingeyri næsta laugardag - gegn B?/Bolungarvík sem heitir með réttu Vestri eftir sameininguna sl. helgi. En það verður gaman að reyna á völlinn!

Bíð spenntur eftir næstu færslu frá vini mínum, honum S.Birni Erni eftir leikinn gegn FH - þar sem m.a. víti fór forgörðum hjá S.Birni Erni. Það verður einhver lesninginn…

Líf og fjör! EÖE

–>