Hef síðan ég flutti vestur ávallt litið hornauga á þá hunda(-eigendur) sem fá að ganga lausir um götur bæjarins, ekki það að ég geti hindrað að þessir skrokkar stökkvi í fangið á mér heldur er ég að hugsa um náungann - þ.e. þá sem hræðast þessar skepnur og lítil börn sem eiga sér litla von þegar 30-40 kg. skepna kemur á góðum hraða í fangið á þeim og vill fara að “leika”. ? bænum eru nokkrir hundaeigendur sem skemma fyrir öllum hinum… virða ekki þá einföldu reglu (skv. landslögum); að hundar mega ekki vera lausir innanbæjar. Þessir sömu hundaeigendur halda eflaust að bærinn sé sveit - bara af þeirri einföldun að bærinn er ekki á Höfuðborgarsvæðinu? Hef lent tvisvar sinnum í því núna með stuttu millibili að standa á milli barnanna minna og slefandi hunda sem vilja “leika” við mig og mína - en mér og mínum er ekkert sama! Svo koma umsjónarmenn(konur) hundanna 30-50 metrum síðar og skilja ekkert í því af hverju hundurinn svari ekki kalli og eða hlýði - en það sem þessir aðilar botna heldur ekkert í er af hverju þessi ótti við skepnurnar hjá börnunum og þessi andúð frá mér… svarið við því er einfallt til þessara hundaumsjónarmanna(kvenna); Ekki eyða orku í að reyna að skilja hvað öðrum finnst því ykkur virðist ekki veita af allri ykkar einbeitingu til að fara eftir lögum - hafið dýrin í bandi! Og að lokum - það getur allt gerst; Tveggja ára stúlka er á sjúkrahúsi eftir að hundur réðist á hana þar sem hún var gestkomandi í íbúð í Lancashire í Skotlandi. Stúlkan hlaut alvarlega áverka á andliti og hefur farið í eina aðgerð. Hundurinn er af Staffordshire bull terrier kyni. Hann hafði ekki áður ráðist að fólki og er ekki á lista yfir hættulega hunda.
Stúlkan var með móður sinni í heimsókn hjá vinum þegar hundurinn réðist á hana. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Rannsókn hefur fram í íbúðinni að sögn lögreglu. Hundurinn verður svæfður um helgina með fullu samþykki eigendanna. Vísir, 28. apr. 2007 20:37
Að ógleymdum óþrifnaðinum sem skepnunar skilja eftir sig víðsvegar um bæinn!

Þetta gengur ekki lengur!
EÖE
–>
Einhverjir eru spenntir fyrir kvöldinu og velta því fyrir sér hvernig leikurinn fer - veit ekki af hverju menn eru að velta sér upp úr þessu… þetta liggur allt ljóst fyrir og var t.a.m. tilkynnt hér á síðunni 9. marz sl. “Liverpool er komið í úrslit meistaradeildarinnar í annað skiptið á þremur árum - og aftur slá þeir Chelsea út í undanúrslitum - svekkjandi fyrir þá! Það sem svo meira er að Liverpool mætir sama liði og síðast, AC Milan sem henti Man.Utd. úr keppni á leið sinni í úrslitin.
Það verður spennandi að fylgjast með hvort lygasagan frá Istanbúl 2005 endurtaki sig í ár?
Leikurinn í kvöld fer 0-2 fyrir Liverpool og seinni leikurinn á Anfield fer 1-1. Svona er þetta bara!
Vimmi & Þobbi - t.a.m. þýðir “…til að mynda…” –>
Mínir menn í Seria A lönduðu langþráðum sigri í deildinni í gær. Inter í Milan náði sínum 15 deildarmeistaratitli og þeim fyrsta síðan 1989 - eða frá því Zenga, Brehme & Matthaeus létu með liðinu. Teljum titilinn í fyrra ekki með sem liðið vann ekki heldur Juventus tapaði.

Mikið verið rætt í knattspyrnuheiminum undanfarna daga um markið hjá Messi gegn Getafe í vikunni. Stórglæslilegt mark. Ekki ósvipað markinu sem Maradona gerði gegn Englendingum á HM1986 en ekki meira en það. Markið hjá Messi getur aldrei talist til betra og eða jafn mikils afreks og hjá Maradona af þeirri einföldu ástæðu að aðstæðurnar voru ekki sambærinlegar. Maradona var á miklu hærri standard!
Frá HM yfir í deildarbikarinn - B?88 lék um helgina gegn Snæfelli og sigraði 11-0. Snæfell er hugsanlegur andstæðingur Höfrungs í bikarkeppninni í maí - ef leikurinn gegn Grundarfirði vinnst mætast Höfrungur og Snæfell á Þingeyri. Miðað við úrslit leiks Höfrungs og B?88 annars vegar og úrslit úr leik B?88 og Snæfells hins vegar má áætla að Höfrungur sigri Snæfell með 6-7 marka mun.
Til að afsanna það sem kom fram í commenti þegar staðan í Vestfjarðardeildinni var birt hér í fyrsta skipti er staðan eftir úrslit helgarinnar birt - a.m.k. efstu sex sætin svo sjá megi baráttuna um Meistaradeildarsætið;
1 FC Hamrar - Karl Kristbjarnarson - 1664
2 Meyjan - Ellert Örn Erlingsson - 1656
3 Stuðmundur - Guðmundur Guðjónsson - 1650
4 The team - Smari stefansson - 1642
5 Nallarinn - Jón Hálfdán Pétursson - 1624
6 Njarðvík - Gudni Erlendsson - 1495
? gær var tilkynnt lið ársins í ensku úrvalsdeildinni og um leið einhverjir aðrir titlar - aðeins eitt um það að segja - skuggalega margar viðurkenningar til Man.Utd.
Valsmenn lönduðu dollunni í handboltanum í gær og vel að því komnir og áttu allan minn stuðning í þeirri baráttu - og reyndar synd hvernig handboltinn hér heima einhvern veginn læðist framhjá manni og áður en maður veit af er búið að krýna meistara - vantar klárlega meiri og betri umgjörð! –>
elli.is rakst á ótrulega staðreynd á ferð sinni um internetið - arftaki og eftirlíking hins margrómaða Paolo Maldini er fundinn - a.m.k. er álíka mikið af “tani” á arftakanum en látum allt hitt liggja á milli hluta. Lesendur hljóta að vera sammála þessari fullyrðingu. Arftakinn, sem er 20 árum yngri en Maldini er kappi úr Fossvoginum að nafni Þorvaldur Sveinn - og kann elli.is engin frekari skil á drengnum.
Smellið hér til að sjá arftaka Paolo Maldini?
–>
Ég hef hamrað á því hér áður að Dýrafjörðurinn er nafli alheimsins og enn og aftur fæ ég vind í segl orða minna - ný vilja margfaldir olíukóngar frá því virta ríki Rússlandi komast á land á Vestfjörðum til að reisa olíhreinsistöð - fyrirtæki sem telst ekki til stóriðju og myndi hafa 600-700 manns í vinnu, þar af rúmlega helminginn háskólamenntaðann. 700 manna vinnustaður þýðir a.m.k. 700 aðrir íbúar/viðhengi sem myndi þýða byltingu í einu og öllu fyrir Dýrafjörðinn og Vestfirði í heild sinni. En allt kostar sitt - svona apparat tekur 130 hektara = 130 fótboltavellir og því fylgir frekar mikil sjónmengun - ekkert nema tankar, rör og gufa. Viljum við slíkt inn á okkar náttúruperlu… ? - sjáum til! Til að staðfesta mál mitt vísa ég á frétt á ruv.is - ekki lýgur RÚV!
Langþráðum áfanga var náð þar síðustu helgi þegar lið Meyjunnar komst á toppinn í Vestfjarðardeildinni. Sögu Vestfjarðardeildarinnar má rekja aftur til námsáranna á Laugarvatni þegar Meyjumeðlimir tóku þátt í Draumaliðsleik Júlla Júll á Dalvík - þegar sá leikur laut í lægra haldi fyrir tækninni var þráðurinn tekinn upp á enskri síðu sem er að svínvirka - og hefur keppninni milli Meyjumanna vaxið fiskur um hrygg og telur nú 15 keppendur sem á einhvern hátt tengjast Meyjunni (gamlir viðskiptavinir) eða hafa tengsl vestur á firði. Stigatalning síðustu helgar er enn í gangi og munu bætast við stig í kvöld og á morgun þar sem nokkrir leikir eru í enska boltanum í kvöld og á morgun. En staðan er svona;
Vestfjarðardeildin
1 FC Hamrar - Karl Kristbjarnarson = 1595
2 Meyjan - Ellert Örn Erlingsson = 1595
3 The team - smari stefansson = 1577
4 Stuðmundur - Guðmundur Guðjónsson = 1572
5 Nallarinn - Jón Hálfdán Pétursson = 1528
6 Njarðvík - Gudni Erlendsson = 1425
7 gaski - Simon Geir = 1399
8 Dalton FC - Ivar Örn Reynisson = 1386
9 torfijo - Torfi Jóhannsson = 1368
10 Twins - Valur Örn Ellertsson = 1323
11 Krokurinn FC - Eyrún Harpa Hlynsdóttir = 1291
12 Liverpool-X - Ernir Elí Ellertsson = 1260
13 Titleist - Atli Johannesson = 1173
14 Húsalind - Gudmundur Brynjolfsson = 1109
15 Leiknir - Garðar ?sgeirsson = 1077
Hörkukeppni sem er hvergi nærri búinn!
kv. EÖE
p.s. skora á lesendur að kíkja á myndirnar sem fjallað var um í síðustu færslu!
p.s.#2 - rifjaðist upp fyrir mér í gær yfir fréttunum af Byssu-Brandi afhverju ég hætti við að fara í háskólanám til USA á sínum tíma…
–>
Fauk “óvænt” til Reykjavíkur um helgina. Komst suður með sannkölluðu háskaflugi úr ?safjarðardjúpinu í norðvestan 15 m/s á föstudaginn. ? kjölfarið var SPA-ferðin í Laugar með Vimma og Helga kærkomin slökun eftir þá flugferð. En ótrúlegt hvað þetta SPA er nice - þarna getur maður alveg gleymt sér…
Laugardagurinn var undirlagður endurmenntunarnámskeiði hjá The Red Cross - þar sem hálfgerður Laugarvatnsfílingur var í gangi; Ingvar (2.ári), Lína (1.ári) og Sóley (ég á 4. ári) voru þarna líka og alltaf gaman að hitta gott lið. Námskeiðið endaði í Forvarnarhúsi Sjóvá í Kringlunni og nú finnst mér forræðishyggjan ganga alveg út í það lengsta - það er búið að innrétta 2-3 íbúðir með öllum mögulegum slysavörnum og þarna er tekið á móti einstaklingum og hópum í skoðunarferðir - það er búið að einkavæða slysavarnir! Það er verið að pakka núverandi og komandi kynslóðum inní svo mikinn bómull og mikla verndun að eftir nokkur ár telst það til stórslysa að fá flís í fingur!
Laugardagskvöldið var frátekið með vinunum úr Bökkunum; Við Viddi og Maggi mættum á Players en Atli komst ekki - hann var fastur um borð í Wilson Muga í Sandgerði. Svo skemmtilega vildi til að á laugardagskvöldið var The Big Reunion hjá árgöngum ´75, ´76 & ´77 úr Breiðholtsskóla. Við vinirnir stungum nefjunum þar aðeins inn undir lokinn og ótrúlegt hvað sumir breytast en aðrir ekki. Tel nokkuð víst, þó ég segji sjálfur frá, að ég hafi elst einna manna best af þeim sem þarna voru
En ekki verður tilgreint hverjir hafa staðið sig verst af þeim 50 sem þarna mættu.
Því næst heimtuðu vinirnir að sýna sveitungnum lífið í miðbæ Reykjavíkur - og varð menningarstaðurinn Oliver fyrir valinu. Fyrir riddara og landkönnuð eins og mig sem er sjaldan á þessum slóðum var þetta ágæt upplifun - hitti alltof mikið af fólki sem maður hefur ekki séð í háa herrans tíð og kjaftaði út í eitt!
Kvöldið endaði svo með því að ég fylgdi Vimma bró heim - enda drengurinn úti langt fram yfir sinn útivistatíma.
? tilefni The Big Reunion var sett upp bloggsíða og þar hefur liðið verið að skiptast á skrifum og fleira. Þar er einnig að finna myndir frá því mjög snemma á tíunda áratugnum. Um þessar myndir verður ekki haft fleiri orð hér - þær segja allt sem segja þar… Myndirnar er að finna hér!
kv. EÖE
–>
Meistaraflokkur Höfrungs í knattspyrnu spilaði sinn fyrsta leik í langan tíma í gær þegar liðið mætti B?88 í æfingarleik á gervigrasinu á ?safirði. Leikurinn var hluti af undirbúningi Höfrungs fyrir bikarævintýrið sem hefst í maí og mun vonandi standa fram í september. Leikurinn hófst kl. 12:30 og voru leiknir þrír 30 mínútna leikir. Leikmannahópur Höfrungs var að mestu skipaður Dýrfirðingum og eða leikmönnum tengdum firðinum fagra.
Hópinn skipuðu;
Dominik Bochra
Ellert Örn Erlingsson
Emil Gunnarsson (tengdasonur formannsins).
Eyþór Skarphéðinsson, lánsmaður frá B?88 og stóð í markinu.
Guðmundur Jónsson
Helgi Snær Ragnarsson
Jón Hálfdán Pétursson (?safirði)
Jón Þorsteinn Sigurðsson
Ólafur Auðunn Steinþórsson
Pétur Eggert Torfason
Pétur Jónsson (Bolungarvík)
Smári Stefánsson (Lambadal)
Snorri Karl Birgisson
Steinn Ólafsson
Torfi Jóhannesson
Gangur leiksins var á þá vegu að eftir 30 mínútur var staðan 1-1. Pétur Jónsson skoraði og jafnaði fyrir Höfrug eftir sendingu frá Eyþóri í markinu. Því næst kom 30 mínútna slæmur kafli í anda handboltalandsliðsins og B?88 breytti stöðunni í 4-1.
? síðasta hálftímanum voru skoruð þrjú mörk og lokatölur 6-2 sigur heimamanna. Emil Gunnarsson lagaði stöðuna undir lokin er hann skoraði annað mark Höfrungs með góðu skoti utan úr teig.
Burt séð frá úrslitum leiksins ganga leikmenn Höfrungs 90 mínútunum reyndari af knatspyrnuvellinum sem verður m.a. nýtt til hins ítrasta þegar á hólminn er komið í maí.
Sjá einnig á Þingeyrarvefnum.
? Þingeyrarvefnum er einnig að finna aðra frétt af kunnulegu liði…
EÖE
–>
Húsið fullt af gestum - hin árlegi páskahittingur fer nú fram á Þingeyri.
Ann-Helen lektor frá Laugarvatni datt inn í heimsókn í fyrradag - hver hefði átt von á því haustið 1998…
Æfingarleikur hjá Höfrungi á morgun - mætum liði B?88 á Torfnesinu og svo allir á “Aldrei fór ég suður”.
Uppfærslan hér verður í minna lagi yfir páskahelgina (ekki eins og hún hafi verði dagleg hingað til…) þó aðallega vegna þess að það er enginn til að lesa - það eru allir í fríi!
Gleðilega páska!
EÖE