Litla frænka mín var að commentera á þar síðustu færslu - Uppgjör vikunnar… og er commentið hér að sjá auk þess sem ég set svar mitt undir!
Dagný Says:
March 7th, 2007 at 8:53 am e
Jahá frændi bara orðinn svoldið grænn. Get ekkert séð að því að Bjarni ?rmanns sé með þessi laun. Hann borgar skatt af þeim, ber mikla ábyrgð og tekur ákvarðanir sem eru að skila bankanum miljarða í hagnað… Svo minni ég á að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu er 20 milj fyrir smá kitru. Hvað er fasteignaverð hjá ykkur fyrir vestan? Svo finnast mér 40 þús fyrir 2 börn með hádegismat ekkert svo mikið, nema þú sért að tala um á per.barn og hvar er þessi þjónusta frí ???? Persónulega væri ég til í að borga meira til þess að leikskólakennarar fengu enn betri laun og legðu meiri metnað í það sem þeir eru að gera. Hef heyrt að á mörgum stöðum hafa leikskólakennarar hætt og ekkert nema schooldropout og þunglyndissjúklingar sem eru að vinna á leikskólunum. Jisús minn ekki það sem mig langar að bjóða mínu barni uppá allan daginn. Vil fá hámenntað fólk inná leikskólana uppeldisfræðinga og leikskólakennara og ég skal borga fyrir það, þá með hærri sköttum eða úr eigin vasa.
En ég er sammála þér með gos og sykur…það hefði verið nær að taka skattin af bleyjum og barnafötum.
Kv.Dagný hægrisinnaða frænka þín Gaman að lesa þetta hjá þér…
Bjarni borgar ekki 38% skatt af öllum þessum pening - eins og almúgurinn! Það er fullt af fólki sem ber ábyrgð og fullt af fólki sem tekur mikilvægari ákvarðanir en þessi Bjarni og fyrir margfallt minna fé. Hvað ætli hann hafi marga undirmenn sem axla jafnvel meiri ábyrgð en hann og taka álíka mikilvægar ákvarðanir og hann? Þetta eru bara svo háar tölur að það er siðlaust að kalla þetta laun! Og það eru einmitt svona tölur sem skekkja launamarkaðinn og kemur ójanfvægi á þjóðfélagið. Svona tölur hækka alla launataxta í þjóðfélaginu og allir gera kröfur um hærri laun - líka hjá fyrirtækjum sem skila ekki miljörðum í hagnað og hafa ekki efni á frekari launaútgjöldum - sem hefur svo þau keðjuáhrif að vörur hækka og þjónustugjöld hækka og almúgann munar um það - en að sjálfsögðu ekki mann með 11 milj. á mánuði + bónusa. T.d. gerir svona launaþróun það að verkum að illa gengur að manna leikskóla því launin eru svo lág fyrir háskólamenntaða kennara - sem getur farið og starfað hjá Glitni fyrir hærri laun. Og nú stefnir í annað eins hjá grunnskólakennurum - launaþróunin hefur verið svo mikil sl. misseri (þökk sé m.a. ofurlaunum forstjóra) að kennarar eiga tilkall til hækkunar launa sem launagreiðandinn hefur ekki efni á og því allt í hnút! Hvar endar þetta!
Fasteignamat er alls staðar of hátt og náttúrulega bara rugl á höfuðborgarsvæðinu.
? einstaka sveitafélögum eru leikskólagjöldin frí (get ómögulega munað hvar but it´s true) og hjá öllum sveitafélögum gjöldin lærri en hjá ?safjarðarbæ og hjá sumum þeirra er frítt fyrir ákv. aldur. T.d. í Reykjavík er bara borgað með einu barni - sama hve mörg þú átt á leikskólanum, c.a. 20.000.-
Allir eiga eiga möguleika á að fara á leikskóla því gengur ekki upp að fólk þurfi að greiða eitthvað extra-meira (mikið) fyrir leikskólapláss því þá erum við að útiloka fullt af börnum - og öll börn þurfa á leikskóla að halda - enda leikskóli orðinn alvöru uppeldisstofnun sem er nánast ómissandi í samfellu í námi, þ.e. frá leikskóla inn í grunnskóla. Auðvitað væri hægt að hafa einhverja einkarekna leikskóla sem kostuðu morðfjár - en meiri gæði… veit ekki!?
Vonandi fyrirgefur þú mér Dagný fyrir að birta þetta svona - en þetta voru bara skoðunnarskipti sem áttu erindi inn á forsíðuna.
Einhverjir hafa verið að tala um Vinstri-Græna hér - hvað ætli margir hafi hætt að styðja þann flokk eftir Silfur Egils á sl. sunnudag. Þar sem einhver rauðsokka kjaftaði af sér hægri vinstri og var nánast alltaf stungið uppí hana jafnóðum! Trúi ekki að þessi aðili komi aftur fram fyrir flokkinn í fjölmiðlum.
…og hver er ekki í skýjunum eftir L´pool vs. Barca í gær! Reyndar áhyggjuefni að spila tvo leiki á 4 dögum - eiga þá báða skuldlaust en enda með 0-1 út úr báðum leikjum. En Benítez reddar þessu - liðið fer alla leið!
Spennan magnast upp nú þegar rúmir 2 mánuðir eru í leikinn gegn Grundarfirði. Upplýsingar streyma í hús í tengslum við andstæðingana og hópurinn hjá ?þr.fél. Höfrungi heldur áfram að stækka og virðist markmiðið vera í sjónmáli - skipa lið með leikmönnum sem hefur samtals leikið 800 mfl.leiki. Bendi á eldri færslur til að fylgjast með þessu bikarævintýri!
EÖE –>