elli.is

Riddari & landkönnuður

Archive for February, 2007

And the Oscar goes to…

Umhverfis-eitthvað er orðið þessa dagana. Menn eru með og á móti og eru svo orðnir á móti því sem þeir eru með og með því sem þeir eru á móti. T.d. skemmtilegir tímar fram undan í Hafnarfirði - á milli fylkinga þar með/ámóti stækkun álvers. Skil ekkert í reykvíkingum að láta ekki meira í sér heyra við allri þessari svifryksmengun sem er orðin rúmlega meira en algeng í höfuðborginni. Það vilja nánast allir vera eitthvað grænir - meira að segja bláa X-D logo-ið var orðið grænt um daginn. Til að tilheyra þessum hópi mun elli.is vera eitthvað grænn þessa vikuna.

The Departed & Scorsase hlutu óskarinn verðskuldað - hörku góð mynd sem er óvænt svo sé ekki meira sagt. Svo átti mr. Scorsase óskarinn svo löngu skilið…

Liverpool FC á flugi þessa dagana - öruggur 3-0 sigur um helgina og Fowler með tvö - just like the 90´s. Spennan er farin að magnast upp fyrir næstu helgi og leikin þar á eftir. Man.Utd á laugardaginn og svo Barcelona á miðvikudaginn þar á eftir. Setti inn til hægri - undir valmyndinni “Liverpool FC” nokkuð góða punkta sem aðdáendur geta glaðst yfir og aðrir svekkt sig á!

Skondnar og ekki skondnar fréttir úr glæpaheiminum sl. daga. Ótrúlegt hvað hópur unglinga og ungs fólks komst upp með mörg brot sl. haust um nánast allt land - reynar ekki á Vestfjörðum - vegirnir eru nú ekki svo slæmir að ekki einu sinni glæpamenn nenna þangað. En gengið var marg oft handtekið og það var ekki fyrr en ákveðinn kvóti var fullur að liðið var stoppað. Sjálfsögðu á bara að hafa kerfið þannig að liðið er handttekið eftir 2-3 brot og þá í varðhald! Svo voru ótrúlega amerískar myndir sem sáust í fréttum í kvöld af einhverjum vitleysingum sem reyndu að stinga lögguna af í Kópavogi í ágúst í fyrra. Þeir gaurar enduðu aftan á pallbíl inni í strætóskýli. Hélt að svona sæist bara frá USA. En annars erum við svo hel…. amerísk orðin.
Eða íslenska burðadýrið í Bremerhaven sem var eftirlýst fyrir smygl - en leitaði samt aðstoðar lögreglu við að leysa út peninga… og var handtekin. IQ hjá mörgum glæpamanninum verður þeim að falli!

EÖE sá auglýsingu á mæðraþættinum “Fyrstu skrefin” á Skjá1 sem verður á miðvikudaginn kl. 20:30 - laugvetningar athugið Hanna Kjartans verður þar!

Out!

Alltaf

Smá heimspeki varðandi orðaval og orðanotkun!

Hver er ekki alltaf eða aldrei eitthvað?! Alltaf og aldrei eru stórar fullyrðingar sem alltof margir mis- og ofnota í daglegu máli. Skv. íslenskri orðabók eru skilgreiningarnar á þessum orðum á þessa vegu; Alltaf = sífellt, stöðugt, alla tíma, ætíð. Aldrei = ekki nokkurn tíma, engu sinni.

Hef gaman að benda fólki á þessar fullyrðingar þegar þær eru misnotaða - fá liðið aðeins til að hugsa hvað er verið að segja!
Skora á lesendur að prófa þetta með sjálfum sér, 1) draga úr notkun þessara orða þegar þau eiga ekki við, 2) benda viðmælendum á misnotkun/ofnotkun orðanna! Þó það sé ekki nema bara til að vera með óþæginlega athugasemd!:)

Heppni og óheppni eru orð sem eru notuð í of mörgum tilfellum. Persónlega er ekkert til sem kallast getur heppni eða óheppni. Þessi orð eru oftast notuð og sögð í stað þess að notast við orð sem raunverulega eiga við. Orðið heppni er notað t.d. svona; “hann var heppinn að meiða sig ekki, ” hún var heppin að skora”, “hann var heppinn í prófinu”, “hún var heppin í bingóinu”. Þessi dæmi hafa ekkert með heppni að gera, þarna eru á ferðinni viðbrögð, hæfileikar, færni og svo samblanda af þessum þremur þáttum svo eitthvað sé nefnt.
Svo má auðveldlega snúa dæmunum við þegar talað er um óheppni - þá er um að ræða léleg viðbrögð, ekki næga hæfileika og ekki góða færni. T.d. hversu oft hefur maður nú ekki heyrt íþróttaþulina tala um að einhver hafi verið óheppinn að skora ekki… viðkomandi gerið bara ekki nógu vel - einhvers konar samblanda af neikvæðum viðbrögðum, hæfileikum og færni!
Ætla ekki að hafa þessa pælingu lengri og á ekki von á að þessum orðum verði eytt úr íslenskum orðabókum á næstunni en þetta er pæling sem ég hvet þig til að pæla í - er heppni og óheppni til?

Þessi klámráðstefna sem var fyrirhuguð í Reykjavík verður eitthvað á milli tannanna á fólki inní árið… Hvað ætla þeir að gera framvegis á Hótel Sögu - rannsaka tilefni og bakgrunn allra gesta!? Gísli fréttamaður á RÚV mátaði hótelið svo vel í sinni frétt um málið þegar hann sýndi fram á að boðið er uppá adult movies á hótelinu sem bannar adult-ráðstefnur - það má horfa en ekki tala á Hótel Sögu. :)

Síðar… EÖE
–>

Réttlæting!

Gleymi því ekki þegar bankastjórarnir voru í síðustu kjarabaráttu og voru að sannfæra almenning um að þeir ættu þessi laun skilið - að þeir væru alltaf í vinnunni a.m.k. 8 tíma á dag, sumarfríið væri lítið sem ekkert - eða bara eins og hjá öllum hinum - og svo var það náttúrulega öll ábyrgðin! Ógleymanlegt!

Eins er ótrúlegt þegar læknum tókst að sannfæra þjóðina um að þeir mættu í vinnuna og ynnu fyrir laununum sínum en fengju ekki bara borgað fyrir dr.-titilinn! Ótrúlegt!

En ótrúlegast af öllu ótrúlegu er þegar nokkur stéttafélaög sannfærði launagreiðendur og atvinnurekendur að þeirra félagar væru m.a. lærðir einstaklingar sem ynnu góð störf en ekki bara kenntitölur sem fengu útborgað! Þvílíkur sannfæringarkraftur í forsvarsmönnum stéttafélaganna að fá alla til að trúa því að þeirra félagar vinna sína vinnu!

See my point!?

Nei það er bara ein stétt sem hefur undanfarin ár verið að réttlæta sín störf. Kennarastéttin hefur undanfarin ár eytt púðri í að sannfæra þjóðina að 100% kennaravinna sé 100% vinna. Eilíft þras um vinnutíma, starfsdaga, sumarfrí, undirbúning og fleira. Þetta er einsdæmi! Þessa umræðu ætti kennarastéttin að leggja til hliðar og einbeita sér að öðrum hliðum kjara- og launamála. Ef einhverjum finnst kennarar ekki vinna vinnuna sína og ætti því ekki að hafa ákveðin laun þá ætti það að vera hausverkur viðkomandi en ekki kennara að réttlæta “pakkann” og láta stýrast af þeim hóp sem er ósammála kennurum.

Kennarastarfið er m.a. þriggja ára háskólanám, ábyrgðin og álagið ætti að liggja í augum uppi fyrir hverjum sem það vill sjá - þetta er t.a.m. næg rök fyrir hærri launum!

Þetta er pæling sem fór í gang eftir að hafa hlustað á botnfall þjóðarinnar tjá sig í Reykjavík síðdegis um kennarastéttina. Kennarar eiga ekki að eltast við svona lið! Hvað finnst þér?

Liverpool gerði góða ferð til Nou Camp í kvöld - voru betri en heimamenn og unnu sanngjarnt 2-1. Gaman að sjá að það eiga fleiri lið sinn “Dudek”. Svo minntu sumir taktar hjá varnarmönnum Barca á tímana þegar Kvarme og Phill Bab léku í Liverpool-vörninni. Sigrum heimaleikinn líka 2-1 eftir tvær vikur!

Roger - over and out!

–>

Höfrungur

Fjölskyldan úr Dýrafirði er komin heim! Öðruvísi bæjarferð að baki sem var aðallega byggð á veikindum en á móti kemur að við hittum fjölda fólks. Erum ekki væntanleg suður fyrir Arnarfjörð fyrr en í júní.

Þegar heim var komið fórum við beint í Félagsheimilið þar sem 100 ára afmæliskaffi Kvenfélagsins Vonar var haldið. Þegar við erum að koma að aðalinnganinum stígur út kona og kveikir sér í sígarrettu og við (og fleiri) fáum þetta beint í fangið - fannst ég kannast við konuna (eins mannglöggur og ég er) og byrja að góla “Please don´t smoke there” og aftur og aftur á minni Oxford ensku - og það er ekki fyrr en ég er að vera kominn í fagnið á þessari konu að ég átta mig á þessu - fór mannavillt - þetta er e-r ?slendingur (týpíst)… en var þá ekki lengi að snara þessu yfir á íslensku og bað hana að reykja annars staðar - var nokkuð treg til þrátt fyrir að reykurinn bærist í öndunarfæri fjölda barna - og svo þegar hún fór aðeins frá í fýlu spyr hún “Ertu Þingeyringur?” - Hvað kemur það málinu við? En ég hef nánast fengið mig saddan af því þegar reykingarmenn/konur hlaða sér upp fyrir utan staði þar sem þeir mega ekki reykja inni og reykja þess í stað við anddyrið og maður gengur beint í fangið á ógeðinu - svona er þetta við Samkaup, Bónus og flugstöðina - óþolandi - og jú líka við félagsheimilið - réttast væri að gera eins og ameríkaninn - setja skilti við byggingarnar þar sem kemur fram að reykingar eru bannaðar x marga metra frá skiltinu - hvernig væri það?
Setti lög um tóbaksvarnir inn í hlekki - undir alfræði!

Stórtíðindi að vestan; ?þróttafélagið Höfrungur keppir í Bikarkeppni KS? 2007. Dregið var í forkeppni, 1. umferð og 2. umferð sl. föstudag. Höfrungur mætir fyrst Grundarfirði, svo Snæfelli og svo Aftureldingu. Eftir leikinn við Aftureldingu kemur í ljós hverjum við mætum í 3. umferð. Vísa á frétt um þetta á thingeyri.is

Það fór eins og hér hafið komið fram áður… rauðhærða kyntröllið úr Gaggó vest sigraði Eurovision (á íslandi) og heldur til Finnlands. Minn maður! Og til að sýna að þetta hafi ekki verið heppni (sem er ekki til frekar en óheppni) þá segi ég að hann fari áfram í gegnum forkeppnina og lendi í 11. sæti á úrslitakvöldinu! Remember that!

Athyglisverður punktur sem e-r vestur-íslendingur benti á í fréttum í kvöld; að ef rétt reynist að íslenskir ráðamenn hafi verið að tengja aðila við ákveðna ólöglega starfsemi án frekari rökstuðnings þá eigi þeir yfir höfði sér kærur og meinyrðamál. Er ég þá að tala um það sem ráðamenn hafa sagt í tengslum við fyrirhugaða kynlífsráðstefnu í Reykjavík í mars. Það verður gaman að sjá hvernig öll sú sápuópera endar!

Hef oft velt því fyrir mér hvort íþróttaþulirnir (íslensku) á knattspyrnuleikjunum í sjónvarpinu sjái ekki sömu útsendingu og við hin heim í stofu… veit nú að svo er en eru þeir þá sjónskertir eða ekki að horfa á skjáinn? Þetta eru aðallega Höddi Magg og Gaupi sem missa af einhverju atviki á skjánum og koma svo með e-r fullyrðingar og stóryrði sem eru ekki neinu samhengi því þeir sáu ekki hvað gerðist… t.d. fékk leikmaður í kvöld rautt spjald í leik Barca og Valencia fyrir að hrinda öðrum leikmanni - það sást vel en Höddi sá það ekki og skyldi ekkert í dómaranum… og dró sínar ályktarnir og tautaði! Gaupi er 50% verri!

? skjánum í kvöld var líka frænka - Adda Karls var í Sjálfstæðu fólki og gerði þar bara gott mót. Af því tilefni hefur hlekk inn á Útvarp Sögu verið bætt við til hægri!

Að lokum spurning til lesenda (ef einhver nennir að lesa alla leið hingað); “Getur tattó verið gengisfelling á fegurð?”

–>

Fáfræði

Var að lesa bloggið hjá vini mínum S.Birni þar sem hann tekur aðeins á umræðunni í símatímum í útvarpsþáttum - þar sem hann var m.a. þátttakandi í vikunni. Ótrúlegt hvað hinn almenni borgari lætur út úr sér í beinni útsendingu og kemur upp um fáfræði sína og þekkingu á ýmsum sviðum. Útvarpsþátturinn sem vinurinn ræði um er á Bylgjunni og gat hann ekki lengur orða bundist þegar skítkastið óx í garð kennarastéttarinnar. Hvet ykkur til að hlusta á brot úr Reykjavík síðdegis sl. þriðjudag og sl. miðvikudag þar sem ýmsir mokuðu yfir kennarastéttina og ættu þeir aðilar að skammast sín fyrir famkomu og það óorð sem þeir koma á þjóðina með þessari fáfræði.

EÖE –>

Sódóma

Fjölskyldan komin til Sódóma Reykjavík. Heldur til húsa í voginum kenndum við foss. Eitt og annað á dagskrá og til að gera langa sögu stutta þá sjáumst við kannski á rúntinum?

Síðasti sólahringur annasamur hjá fjölskyldunni. Veikindin undanfarna viku innan veggja fjölskyldunnar náðu hámarki í gær þegar yngsti meðlimurinn var lagður inn næturlangt á Heilsugæsluna á ?safirði - með of mikinn hita og þurk. Útskrifaður fyrir hádegi í dag og nú kominn í höfuðborgina.

Hvað þetta með tryggingarmálin í síðustu færslu þá var fátt um almennileg svör hjá þjónustufulltrúanum. Svona er þetta bara hjá þeim og þetta stendur í samningnum! En finnst þér ekki skrýtið að fá tilboð í einhverja vöru og fá svo 10.000.- króna hærri reikning?! Af því í tilboðinu var reiknað inní endurgreiðsla ef þú ert tjónlaus eftir ár!#$”%! Þetta var ekki nógu vel kynnt og því finnst manni maður vera blekktur. Þegar ég spyr um verðið á einhverju þá vill ég vita hvað ég það kostar punktur en ekki hvað kostar ef… En maður er bara númer í svona risaveltu risafyrirtækja og lítið upp úr því að hafa að vera óángæður eða ósáttur - nema þá bara meiri kostnað! En það má ekki gefast upp - því held ég áfram að finna leiðir til að vera ósammála… :)

Sjáumst í Sódóma! –>

Voru

Var að fá tölvupóst frá þjónustufulltrúanum hjá Sjóvá og mér er ekki skemmt - hvað heldur þetta lið að það geti vaðið yfir almúgann…? Verð að deila þessu með ykkur - svona sem víti til varnar!
Keyptum tryggingar fyrir allan pakkann í desember frá Sjóvá - hagstæðasta tilboðið var frá þeim. Svo barst reikningurinn… um 10.000.- krónum hærri en tilboðið hljóðaði uppá. Fékk strax útskýringar frá þjónustufulltrúanum; “? tilboðinu er sundurliðað iðgjald sem kemur á gíróseðli og svo er frádregin Stofn-endurgreiðsla sem er 10%. Hún verður greidd í febrúar svo það er eðlilegt að greiðsluseðlarnir séu hærri en lokatala tilboðsins. Þú átt eftir að fá endurgreitt c.a 8.800.kr. Svo er alltaf smá stimpilgjald sem eru nokkrir hundraðkallar sem renna til ríkisins.” Gott og vel - sendi svo fyrirspurn eftir peningunum í febrúar og svarið var að berast í dag og hljóðar svona; “Nú í febrúar vorum við að endurgreiða Stofnfélögum sem voru tjónlausir árið 2006. Þú ert sannarlega tjónlaus árið 2006 en þú komst í viðskipti með bílinn 1.des 2006 og í Stofn komst þú 01.janúar 2007 þannig að árið 2008 færð þú vonandi endurgr 10% af greiddum iðgjöldum v/tjónleysis.” Tjónlaus 2006 - þó það nú væri þennan eina mánuð og meinti hún upphaflega febrúar 2008? Hahahahaha… nei mér er ekki skemmt! (?trekun). Hljómar eins og hún hafi ekki sagt alla söguna til að græða nokkra þúsundkalla (sem mig munar um) og í mín eyru eru þetta svik! Fyrsta símtalið í fyrramálið verður í þennan fulltrúar, ég held nú það… Nánar síðar!

Er brazilíska deildin fyrir efnilega drengi úr 2. flokk og old-boys stjörnur sem snúa heim. Þetta er eitthvað bogið fyrst að hinum rúmlega fertuga Romario tókst að skora þrennu í gær - á aðeins 10 mínútum - á þeim 25 mínútum sem hann spilaði! Nema hann sé svona rosalega góður - hefur reyndar skorað 990 mörk á ferlinum. En þetta er pæling?!

Anna Nichol Smith er öll, blessuð sé minning hennar. Dauði hennar er lifandi (#$%!?) dæmi þess að fegurð og fé er ekki alltaf allt - og hafið hún nóg af hvoru tveggja. Harmleikurinn (sá gríski) heldur áfram að henni látinni - a.m.k. þrír “sleðar” telja sig vera feður barns sem hún átti í fyrra. Sagan segir að hún hafi notast við frosið sæði frá látnum eiginmanni sínum (89 ára) til að gulltryggja sér öll hans auðævi… fyrir erfingjann!

Fjölskyldan við Dýrafjörð lendir í Reykjavík á miðvikudaginn kl. 17:30 og verður þar fram til næsta sunnudags. Dagskrá ferðarinnar er að mótast og þéttast - ekki orð um það meir!

EÖE

–>

Upp

EÖE hefur verið að skila af sér upp og niður sl. sólahring, sem er miður en hefur þó aðallega verið niður!
Síðunni hafa borist nokkuð af heillaóskum og hvattningarorðum í kjölfar endurkomunnar - það er upp!
Rauði herinn frá Bítlaborginni framdi knattspyrnusjálfsmorð (ath. nýyrði) í dag - það er mjög mikið niður!
EÖE er búinn að ákveða hver vinnur forkeppni Eurovision á klakanum - Eiríkur “rauði” Hauksson er bara á leið upp!
Síðan hvenær hafa verið lýðræðilslegar kostningar í mafíunni? KS? þurfti nýtt andlit þannig að þessi úrslit eru niður!
Búið að ákveða að fjölga í efstu deildunum í boltanum - þá er þetta að verða alvöru… sem er bara upp!

Sjálfur himnafaðirinn er nú kominn með hlekk á þessa síðu, smellið á Njarðvíkinginn til hægri and you see my point! Mæli einnig með heimsóknum á bloggið hjá S.Birni Hreiðars - alvöru lesning.

Að lokum áhugaverð tölfræði úr nýrri rannsókn á kynlífsvenjum ?slendinga; íslenskir kvenmenn eiga 14 bólfélaga yfir ævina en karlmenn 25. Ef notast er við Normal-kúrfuna þá kemur í ljós að þeir sem hífa meðaltalið upp eru ansi duglegir… –>

Nafli

Dýrafjörðurinn virðist vera nafli alheimsins þessa dagana. Fjörðurinn fyllist af hafís, hlaut fyrir mikla umfjöllun og fjöldi mynda sýndar úr firðinu og í kjölfarið fylgdi heimsfrægð í erlendum fjölmiðlum þar sem því er nánast haldið fram að við sendum börnin okkar á leikskólann með haglabyssuna á öxlinni af hættu við ísbirni. ? gær vissi maður ekki hvað stóð á sér veðrið þegar þyrla gæslunnar hafði snertilendingu í firðinum og út stukku tveir menn sem enduðu svo á því að kveikja bál í fjörunni. Reyndist þarna vera á ferð sprengisveit gæslunnar að eyða dínamíti sem bóndi nokkur hafði sofið með undir koddanum hjá sér í 40 ár. Svo hefur þetta Breiðavíkurmál dregið Þingeyri í umræðuna - ex-skólastjóri þar er maður í þorpinu. Sá aðili er reyndar saklaus af öllu ofbeldi og níði en það fylgir ekki alltaf sögunni. ? kvöld enduðu svo tíu-fréttir á gullfallegum myndum frá Vestfjörðum þar sem Dýrafjörðurinn lék aðalhlutverkið, enda rómaður fyrir fegurð. Skora á lesendur að kíkja líka á thingeyri.is og skoða fréttina frá Sun Thelegrap. –>

I´m

Já góðir hálsar eftir um 330 daga útlegð frá veraldarvefnum sökum ritskoðunnar og fleiri yfirnáttúrulegra þátta er www.elli.is kominn í loftið aftur. Riddarinn er að kenna landkönnuðinum á þetta annars ágæta form sem hýsir síðuna og mun taka á sig meiri mynd næstu daga.

…dammm it´s good to be back!

–>